
Umkomulaus ein króna sem stöðugt missir af verðgildi sínu.
Enn voru stýrivextir hækkaðir
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í gærmorgun að hækka vexti bankans um eitt prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, eru því nú 3,75%.\r\n\r\n„Efnahagshorfur hafa heldur versnað frá febrúarspá Seðlabankans vegna neikvæðra áhrifa innrásar Rússlands í Úkraínu. Á hinn bóginn eru vísbendingar um talsverðan þrótt innlendra umsvifa. Slakinn í þjóðarbúinu virðist horfinn og spenna tekin að myndast á vinnumarkaði. Gert er ráð fyrir 4,6% hagvexti í ár en að hann verði tæplega 3% á næstu tveimur árum. Verðbólga mældist 7,2% í apríl og horfur hafa versnað verulega. Enn sem fyrr vegur hækkun húsnæðisverðs og annarra innlendra kostnaðarliða þungt auk þess sem alþjóðlegt olíu- og hrávöruverð hefur hækkað mikið. Verðhækkanir eru því á breiðum grunni sem endurspeglast í hraðri aukningu undirliggjandi verðbólgu sem mælist nú ríflega 5%. Þá hafa verðbólguvæntingar hækkað á alla mælikvarða. Samkvæmt spá Seðlabankans eru horfur á að verðbólga aukist í rúmlega 8% á þriðja fjórðungi ársins sem er 2,8 prósentum meiri verðbólga en spáð var í febrúar. Gert er ráð fyrir að samspil vaxtahækkana og hertra lánþegaskilyrða muni hægja á verðhækkun húsnæðis og innlendri eftirspurn.“\r\n\r\nPeningastefnunefnd telur líklegt að herða þurfi taumhald peningastefnunnar enn frekar á næstu mánuðum til að tryggja að verðbólga hjaðni í markmið innan ásættanlegs tíma. Ákvarðanir í atvinnulífi, á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum munu skipta miklu um hversu hátt vextir þurfa að fara.\r\n\r\nViðbrögð verkalýðshreyfingarinnar hafa ekki látið á sér standa. Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR sagði það t.d. í kvöldfréttum sjónvarps í gær alveg á hreinu að hækkun vaxta verður bætt við launakröfu stéttarfélaganna þegar gengið verður að samningaborði síðar á þessu ári.",
"innerBlocks": []
}