{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á föstudaginn í liðinni viku var ökumaður tekinn fyrir of hraðan akstur við Fiskilæk í Melasveit en hann mældist á 131 kílómetra hraða. Þegar lögreglumenn fóru að ræða við ökumanninn fundu þeir kannabislykt í bílnum en ökumaðurinn kannaðist ekki við neitt slíkt. Hann var af erlendu bergi brotinn og ekki með lögheimili á Íslandi. Bíllinn var fluttur á lögreglustöðina og var leitað í honum. Þar fundust 20 grömm af kannabisefnum í hanskahólfinu og var því pakkað inn í sellófan plast. Kallað var á túlk til að aðstoða lögreglu vegna samskiptaörðugleika. Ökumaðurinn er grunaður um vörslu og meðferð fíkniefna og er málinu lokið, að sögn lögreglu.",
"innerBlocks": []
}