Vilhjálmur Birgisson á 1. maí. Ljósm. mm

„Stýrivaxtahækkunin er stríðsyfirlýsing við launafólk“

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Eins prósentustigs hækkun Seðlabankans á stýrivöxtum hefur vakið hörð viðbrögð verkalýðsleiðtoga. Hækkun stýrivaxta er í raun 37%, en þeir fóru í einu vetfangi úr 2,75% í 3,75%. Meðal þeirra sem hafa tjáð sig er Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, sem birti hreinskiptan pistil á Facebooksíðu sinni í gær: „Þessi ákvörðun Seðlabankans er í mínum huga ekkert annað en stríðsyfirlýsing við launafólk, neytendur, heimili og fyrirtæki landsins. Það er alveg ljóst að þetta getur vart annað en kallað á hörð viðbrögð af hálfu verkalýðshreyfingarinnar og mun klárlega endurspegla kröfugerðir þeirra sem nú er verið að ganga frá vítt og breitt um landið,“ segir Vilhjálmur.\r\n\r\nÞá segir hann það einnig umhugsunarefni, og þarfnist útskýringar hjá Seðlabankanum, í ljósi þess að fyrirtæki á hinum almenna vinnumarkaði skulda samkvæmt Hagstofunni um 5000 milljarða en eins prósentustigs vaxtahækkun þýðir að fjármagnskostnaður þeirra hækkar um 50 milljarða á ársgrundvelli sem er nánast sama upphæð og kostar að ganga frá kjarasamningum á hinum almenna vinnumarkaði.\r\n\r\n„Það er alveg ljóst að aukinn fjármagnskostnaður fyrirtækja mun fara beint út í verðlag og þjónustu sem að á endanum endar á herðum neytenda. Það væri gott ef seðlabankastjóri gæti útskýrt það á mannamáli hvernig kjarasamningar á hinum almenna vinnumarkaði séu ætíð að ógna stöðugleika í íslensku samfélagi þegar bara þessi stýrivaxtahækkun getur leitt til þess að það kosti fyrirtækin jafnmikið og að ganga frá kjarasamningi á hinum almenna vinnumarkaði.“\r\n\r\nLoks spyr Vilhjálmur hvers vegna í ósköpunum Seðlabankinn beiti ekki öðrum stjórntækjum sem hann hefur til umráða til að slá á húsnæðismarkaðinn. „Það er með ólíkindum að hann skuli enn og aftur dekra við fjármálaöflin og það hefur verið grátbroslegt að sjá í fréttum að undanförnu að aðalálitsgjafarnir um stýrivaxtahækkunina hafa verið fulltrúar úr bankakerfinu þar sem þeir hafa verið að spá umtalsverðri hækkun á stýrivöxtum og nú hefur þeim orðið að ósk sinni. Rétt er að geta þess að fjármálakerfið hefur svo sannarlega hag af því að vextir fari upp enda hefur þeim tekist að tala stýrivaxtahækkunina upp í hæstu rjáfur með framferði sínu á liðnum dögum. Það er ekki að sjá annað en að framferði stórfyrirtækja sem hafa varpað öllum sínum kostnaðarhækkunum viðstöðulaust yfir á neytendur til að geta viðhaldið arðsemisgræðgi sinni áfram og svo þessar gríðarlegu vaxtahækkanir muni leiða til mikilla átaka á íslenskum vinnumarkaði.“\r\n\r\nLoks bendir Vilhjálmur á að heimili sem er með 50 milljóna króna húsnæðislán á breytilegum vöxtum geti átt von á að greiðslubyrðin aukist um 41 þúsund krónur á mánuði, eða tæpar 500 þúsund krónur á ári. „Heldur Seðlabankinn að slík aukning á greiðslubyrði auki líkurnar á að hægt verði að ganga frá kjarasamningum, nei fjandakornið ekki,“ segir Vilhjálmur.",
  "innerBlocks": []
}
„Stýrivaxtahækkunin er stríðsyfirlýsing við launafólk“ - Skessuhorn