Fréttir

true

Snæfell sigraði Tindastól í hörkuleik

Snæfell tók á móti Tindastól í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og vann að lokum sex stiga sigur í spennandi leik, 61:55. Sex stigum munaði á liðunum í deildinni fyrir leikinn, Snæfell var með 16 stig og Tindastóll með tíu stig. Leikurinn fór rólega af stað en síðan tók Snæfell mikinn kipp, breytti…Lesa meira

true

Hár center hárgreiðslustofa fær andlitslyftingu

Hár center í Borgarnesi hefur aldeilis fengið andlitslyftingu síðustu vikurnar og mætti nánast halda að hárgreiðslustofan sé komið í nýtt húsnæði, en svo er vissulega ekki. Þær Auður Ásta Þorsteinsdóttir og Jóhanna Lóa Sigurbergsdóttir eru eigendur Hár center og hafa þær verið frá upphafi með stofuna sína að Borgarbraut 61 í Borgarnesi, eða síðan árið…Lesa meira

true

Tímabundin lokun gamla þjóðvegarins í svartasta skammdeginu

Fyrr í vetur var tekin ákvörðun um að koma fyrir tímabundinni veglokun á gamla þjóðveginum við Akranes og var vegartálma komið fyrir austan við garðyrkjustöðina. Vegurinn er í eigu og umsjón Akraneskaupstaðar eftir að Vegagerðin skilaði honum á sínum tíma í kjölfar þess að nýr þjóðvegur var lagður inn í bæinn. Reiðvegur liggur samsíða gamla…Lesa meira

true

Ók próflaus í meira en tvo áratugi

Við almennt umferðareftirlit Lögreglunnar á Vesturlandi síðasta föstudagskvöld var ökumaður bifreiðar stöðvaður á Vesturlandsvegi við Hvalfjarðargöng. Þá kom í ljós að hann var ekki með gild ökuréttindi og síðan kom í ljós við nánari eftirgrennslan að ökumaðurinn hafði verið sviptur ökuleyfi um síðustu aldamót en aldrei verið stöðvaður af lögreglu þau rúmlega 20 ár sem…Lesa meira

true

Margir lasnir og í sóttkví

Lögreglan á Vesturlandi birti nú síðdegis uppfærðar tölur um fjölda smitaðra og í sóttkví vegna Covid-19. Fjöldinn hefur aukist svo um munar síðustu daga. nú eru 346 í einangrun í landshlutanum og 392 í sóttkví. Á Akranesi eru 218 í einangrun og 271 í sóttkví; í Borgarnesi eru 87 í einangrun og 80 í sóttkví,…Lesa meira

true

Afhenti undirskriftir vegna Fjöliðjunnar

Síðdegis í dag var bæjarstjórn Akraneskaupstaðar afhentur undirskriftalisti sem Emma Rakel Björnsdóttir, starfsmaður Fjöliðjunnar á Akranesi, átti frumkvæðið að. Þar segir: „Við undirritun mótmælum hér fyrirætlunum um að slíta starfsemi Fjöliðjunnar í tvennt. Við krefjumst þess að Fjöliðjan verði áfram saman sem ein heild.“ Emma Rakel safnaði yfir 600 undirskriftum og var Valgarði Lyngdal Jónssyni,…Lesa meira

true

Alþingi samþykkti veitingastyrki

Frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um styrki til rekstraraðila veitingastaða sem hafa sætt takmörkunum á opnunartíma vegna Covid 19 var samþykkt á Alþingi í dag.  Nýsamþykkt lög gera ráð fyrir að einstakir rekstraraðilar geti fengið allt að 12,5-15 milljónir í styrki til að standa undir rekstrarkostnaði á fimm mánaða tímabili. Hægt verður að sækja um styrkina hjá…Lesa meira

true

Alþjóðlegur netöryggisdagur er í dag

Í dag, 8. febrúar,  er Alþjóðlegi netöryggisdagurinn haldinn hátíðlegur um allan heim, www.saferinternetday.org  Heimili og skóli benda á að í tilefni dagsins eru fjölmörg áhugaverð verkefni í gangi sem vert er að vekja athygli á. Hér að neðan má sjá lista yfir helstu verkefni. Í ljósi aðstæðna og óvissu um hver staðan yrði vegna heimsfaraldurs var…Lesa meira

true

Snjóar og blint til aksturs í dag

Vegagerðin bendir á að víða vestantil á landinu verður snjókoma í dag og blint til aksturs. Því er spáð að dragi úr ofankomu og vindur verði hægari suðvestanlands síðdegis og verður þá skaplegra veður til aksturs. Áfram verður hvasst með éljum á Vestfjörðum.Lesa meira

true

Rafmagnslaust í Hálsasveit

Rafmagnsbilun er í gangi frá Hofstöðum að Augastöðum í Hálsasveit, en verið er að leita að bilun. “Ef þú hefur einhverjar upplýsingar sem gætu hjálpað við bilanaleit hafðu þá vinsamlega samband við Svæðisvakt Rarik á Vesturlandi í síma 528 9390,” segir í tilkynningu. Kort af svæði sem talið er vera um að ræða má sjá…Lesa meira