{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Við almennt umferðareftirlit Lögreglunnar á Vesturlandi síðasta föstudagskvöld var ökumaður bifreiðar stöðvaður á Vesturlandsvegi við Hvalfjarðargöng. Þá kom í ljós að hann var ekki með gild ökuréttindi og síðan kom í ljós við nánari eftirgrennslan að ökumaðurinn hafði verið sviptur ökuleyfi um síðustu aldamót en aldrei verið stöðvaður af lögreglu þau rúmlega 20 ár sem síðan eru liðin. Þar sem sviptingin var fallin úr gildi var hann ekkert að flýta sér að endurnýja leyfið. Viðkomandi þarf að taka ökuprófið aftur, vilji hann aka bíl, og á von á himinhárri sekt.",
"innerBlocks": []
}