
Jóhanna Lóa og Auður Ásta eigendur Hár center í Borgarnesi. Ljósm. glh.
Hár center hárgreiðslustofa fær andlitslyftingu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hár center í Borgarnesi hefur aldeilis fengið andlitslyftingu síðustu vikurnar og mætti nánast halda að hárgreiðslustofan sé komið í nýtt húsnæði, en svo er vissulega ekki. Þær Auður Ásta Þorsteinsdóttir og Jóhanna Lóa Sigurbergsdóttir eru eigendur Hár center og hafa þær verið frá upphafi með stofuna sína að Borgarbraut 61 í Borgarnesi, eða síðan árið 2016.\r\n\r\n„Við leigðum húsnæðið fyrst en eignuðumst eignina, eða þennan hluta hússins í apríl 2020, í miðju Covid í þokkabót,“ segja stöllurnar stoltar. Hár center er til húsa þar sem Sjóvá er í Borgarnesi en gengið er inn á stofuna bakatil í húsinu. „Við máttum í raun ekki breyta rýminu þegar við vorum að leigja það. Síðan eignuðumst við stofuna og í nóvember á síðasta ári fórum við að pæla í því að breyta til og nýta rýmið betur,“ bæta þær við. Nú hafa nokkrir veggir fengið að fjúka og útkoman vægast sagt glæsileg því stofan hefur nánast tvöfaldast í stærð miðað við hvernig áður var. „Það er góður tími að ráðast í smá framkvæmdir eins og þessar í janúarmánuði sem getur verið rólegur. Framkvæmdirnar hafa gengið vel, eina sem er eftir er smávegis frágangur í lofti og aðrar fíniseringar eins og að hengja eitthvað smart upp á veggina. Við stefnum á að allt verði tilbúið um miðjan febrúar,“ segja þær að endingu.\r\n\r\nOpið er í Hár center alla virka daga frá kl. 09:00-18:00 og hægt að panta tíma í síma 437-0102.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_50931\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-50931 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/02/Hár-center-hárgreidslustofa-faer-andlitslyftingu_2-600x400.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"400\" /> Hárgreiðslustofan eftir breytingarnar.[/caption]",
"innerBlocks": []
}