Emma Rakel Björnsdóttir afhenti undirskriftalistann og við honum tók Valgarður Lyngdal Jónsson forseti bæjarstjórnar. Ljósm. mm.

Afhenti undirskriftir vegna Fjöliðjunnar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Síðdegis í dag var bæjarstjórn Akraneskaupstaðar afhentur undirskriftalisti sem Emma Rakel Björnsdóttir, starfsmaður Fjöliðjunnar á Akranesi, átti frumkvæðið að. Þar segir: <em>„Við undirritun mótmælum hér fyrirætlunum um að slíta starfsemi Fjöliðjunnar í tvennt. Við krefjumst þess að Fjöliðjan verði áfram saman sem ein heild.“</em> Emma Rakel safnaði yfir 600 undirskriftum og var Valgarði Lyngdal Jónssyni, forseta bæjarstjórnar, afhentur listinn í dag. Viðstaddir voru auk hans meirihluti bæjarfulltrúa auk starfsfólks Fjöliðjunnar.\r\n\r\nÍ ávarpi sínu sagði Emma Rakel við bæjarfulltrúana að starfsfólk Fjöliðjunnar væri ósátt við þá ákvörðun bæjarstjórnar frá 14. desember síðastliðnum að ætla að byggja yfir þá starfsemi sem nú er undir einu þaki í Fjöliðjunni og færa hana á tvo staði, þ.e. á Dalbraut 10 annars vegar og hins vegar í nýtt áhaldahús á öðrum stað í bænum. Fólkið í Fjöliðjunni væri ein stór fjölskylda sem vildi ekki vera stíað í sundur. Málið hafi hins vegar lent á byrjunarreit með ákvörðun bæjarstjórnar í desember. „Það á að standa við það sem maður segir – líka þið,“ sagði Emma Rakel með festu. Þá vék hún að því að ekki hafi verið rætt við sjálft starfsfólk Fjöliðjunnar áður en bæjarstjórn tók ákvörðun sína og hafi þannig gengið á bak loforðum sem gefin höfðu verið.\r\n\r\nValgarður Lyngdal þakkaði Emmu Rakel fyrir það framtak sem hún sýndi með söfnun undirskriftanna og það væri dýrmætt að bæjarbúar létu í sér heyra ef þeir teldu á rétti sínum brotið. Jafnframt baðst hann afsökunar fyrir hönd bæjarstjórnar ef starfsfólk Fjöliðjunnar liti þannig á að framhjá því hafi verið gengið áður en endanleg ákvörðun í málinu var tekin. Að ávarpi þeirra loknu var Emmu Rakel klappað lof í lófa fyrir framtak sitt og kjark.",
  "innerBlocks": []
}
Afhenti undirskriftir vegna Fjöliðjunnar - Skessuhorn