Fréttir

true

Hundrað kindur og örlögin

Á bænum Laxárholti í Hraunhreppi eru um sextíu mjólkandi kýr og kornrækt á sér um fjörutíu ára sögu. Unnsteinn sem kallaður er Steini, er fæddur og uppalinn í Laxárholti þar sem hann býr ásamt eiginkonu sinni Carol Wanjy. En þótt hann hafi alltaf búið á sama stað fer því fjarri að hann geti talist þröngsýnn.…Lesa meira

true

Svona er ég

Íslenski fáninn blaktir við snoturt hús á Varmalandi í Stafholtstungum þegar blaðamaður Skessuhorns rennir þar í hlað í byrjun desember. Þarna er annað heimili þeirra Vilhjálms Hjörleifssonar og Elizabeth Goodall Alexandersdóttur, en þau eiga einnig íbúð í Reykjavík. Athygli vekur hvað umhverfið er fallegt og þéttur greniskógur skapar skemmtilega og óvanalega umgjörð um húsið. Ekki…Lesa meira

true

Hvítir sloppar henta ekki vel

Rætt við athafnamanninn Þórð Áskel Magnússon í Grundarfirði, Póllandi og Bandaríkjunum „Nú er staðan sú að aldrei þessu vant vantar ríkissjóð aura. Þá er ráðist í að hækka skatta á rafmagnsbíla sem mun líklega hækka útsöluverð þeirra um þriðjung. Frábært. Við hækkum bara kolefnisskatta í staðinn og þá græða allir. Ég ekki skilja neitt.“ Þessa…Lesa meira

true

„Lít mjög stoltur til baka á ferilinn minn“

Knattspyrnumaðurinn Arnór Smárason skrifaði undir tveggja ára samning við Knattspyrnufélag ÍA í byrjun nóvember á þessu ári. Arnór hefur leikið sem atvinnumaður erlendis frá byrjun árs 2004 og skrifaði undir sinn fyrsta atvinnusamning hjá hollenska liðinu SC Heerenveen í september sama ár, þá 16 ára gamall. Auk þess hefur hann spilað sem atvinnumaður í Danmörku,…Lesa meira

true

Fólk þarf að viðra vængina til að læra að fljúga

Rætt við Álfheiði Björk Marinósdóttur kennslustjóra við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri Í blíðviðri nóvembermánaðar settist blaðamaður Skessuhorns niður með Álfheiði Björk Marinósdóttur kennslustjóra á Hvanneyri. Samtalið á sér stað á heimili hennar og Þórarins Sigurðssonar í Borgarnesi. En það er ljóst að verið er að ræða við ekta Skagfirðing. „Ég er fædd og uppalin á…Lesa meira

true

Fjölmörg verkefni björgunarsveita í löngum óveðurskafla

Mikið mæddi á björgunarsveitum landsins í óveðurskaflanum frá síðasta föstudegi og fram yfir helgi. Frá 17. desember og til gærdagsins voru skráðar 83 aðgerðir Slysavarnafélagsins Landsbjargar um allt land. Alls tóku 633 félagar björgunarsveita þátt í þeim, frá 63 björgunarsveitum. 163 björgunartæki voru notuð þessa daga, langmest breyttir jeppar og snjóbílar, en einnig stærri trukkar,…Lesa meira

true

Íbúar á Akranesi orðnir 8000

Áttaþúsundasti íbúinn á Akranesi fæddist á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi rétt eftir hádegi síðastliðinn miðvikudag. Foreldrar hans eru Skagamennirnir Yrsa Þöll Eyjólfsdóttir og Logi Breiðfjörð Franklínsson en þau eignuðust son sem var 54 cm og 16 merkur að þyngd. Drengurinn er annað barn þeirra Yrsu og Loga en fyrir eiga þau soninn Sævar Loga sem…Lesa meira

true

Verð fyrir aflann í hæstu hæðum eftir brælutíð að undanförnu

Oft hefur veiðin á línubátnum Kristni HU verið með ágætum. Skipverjar bættu þó aflaverðmæti sitt svo um munaði í gær þegar landað var 18.357 kílóum í Ólafsvíkurhöfn, en það var jafnframt síðasta löndum bátsins fyrir jól. Þorsteinn Bárðarson skipstjóri sagði í samtali við Skessuhorn að þeir hafi verið á veiðum skammt frá landi við Arnarstapa.…Lesa meira

true

Söfnuðu 500 þúsund krónum fyrir matargjafir á Akranesi

Verslanakeðjan Krónan afhenti hjálparsamtökum rúmlega 450 gjafakort á dögunum. Gjafakortin eru afrakstur jólasöfnunar sem fram fór í verslunum Krónunnar á aðventunni, þar sem viðskiptavinum bauðst að styrkja hjálparsamtök í sínu nærsamfélagi sem sjá um matarúthlutanir í aðdraganda jóla. Viðskiptavinir söfnuðu rúmlega 4,6 milljónum króna og lagði Krónan 5,4 milljón krónur á móti þeirri upphæð. Alls…Lesa meira