Aron Leví brosmildur að laga dýrmætan þorskinn til. Ljósm. af.

Verð fyrir aflann í hæstu hæðum eftir brælutíð að undanförnu

Oft hefur veiðin á línubátnum Kristni HU verið með ágætum. Skipverjar bættu þó aflaverðmæti sitt svo um munaði í gær þegar landað var 18.357 kílóum í Ólafsvíkurhöfn, en það var jafnframt síðasta löndum bátsins fyrir jól. Þorsteinn Bárðarson skipstjóri sagði í samtali við Skessuhorn að þeir hafi verið á veiðum skammt frá landi við Arnarstapa. „Það var kalda fýla um nóttina og fram eftir morgni en svo lagaðist veðrið,“ sagði Þorsteinn. „Það er búið að vera löng og leiðinleg brælutíð síðustu daga svo maður varð að róa. Við róum með landbeitta línu og venjulega förum við með 60 bala en að þessu sinni fórum við með 72 bala, vegna þess að mig grunaði að markaðurinn væri sveltur og mikil vöntun á fiski. Það átti eftir að borga sig,“ sagði Þorsteinn, þegar hann var að landa úr báti sínum.

Verð fyrir aflann í hæstu hæðum eftir brælutíð að undanförnu - Skessuhorn