Frá aðgerðum á Grindavíkurvegi. Hér eru félagar í Þorbirni í Grindavík að aðstoða ökumenn. Ljósm. Landsbjörg.

Fjölmörg verkefni björgunarsveita í löngum óveðurskafla

Mikið mæddi á björgunarsveitum landsins í óveðurskaflanum frá síðasta föstudegi og fram yfir helgi. Frá 17. desember og til gærdagsins voru skráðar 83 aðgerðir Slysavarnafélagsins Landsbjargar um allt land. Alls tóku 633 félagar björgunarsveita þátt í þeim, frá 63 björgunarsveitum. 163 björgunartæki voru notuð þessa daga, langmest breyttir jeppar og snjóbílar, en einnig stærri trukkar, fjórhjól og fleiri tæki.