Söfnuðu 500 þúsund krónum fyrir matargjafir á Akranesi

Verslanakeðjan Krónan afhenti hjálparsamtökum rúmlega 450 gjafakort á dögunum. Gjafakortin eru afrakstur jólasöfnunar sem fram fór í verslunum Krónunnar á aðventunni, þar sem viðskiptavinum bauðst að styrkja hjálparsamtök í sínu nærsamfélagi sem sjá um matarúthlutanir í aðdraganda jóla. Viðskiptavinir söfnuðu rúmlega 4,6 milljónum króna og lagði Krónan 5,4 milljón krónur á móti þeirri upphæð. Alls söfnuðust því 10 milljónir í jólastyrkjasöfnun Krónunnar þetta árið, sem veittar eru í formi rúmlega 450 gjafakorta. Alls söfnuðu Krónan og viðskiptavinir 500 þúsund krónum á Akranesi. Mæðrastyrksnefnd Akraness voru því færð 25 gjafakort á dögunum, hvert upp á 20 þúsund krónur.

Söfnuðu 500 þúsund krónum fyrir matargjafir á Akranesi - Skessuhorn