Fréttir

true

Framleiðir ilmvötn og leggings í Kristý

Oddný Þórunn Bragadóttir er eigandi verslunarinnar Kristý í Hyrnutorgi í Borgarnesi. Verslunin hóf starfsemi sína að Skúlagötu 13, þar sem Kaffi Kyrrð er staðsett í dag. Kristý fagnar 30 ára afmæli á þessu ári en Oddný hefur í gegnum tíðina verið eljusöm við framleiðslu og innflutning á vörumerkjum. Hún var m.a. fyrst til að selja…Lesa meira

true

Spila heimaleikina á útivelli

Knattspyrnudeild Skallagríms sendir tvö lið til keppni í vetur í 5. flokki karla og kvenna í Faxaflóamótinu. Vegna aðstöðuleysis í Borgarnesi þurfa liðin að spila heimaleiki sína á útivelli og ferðast til dæmis á Selfoss, Akranes og Álftanes og til Hafnarfjarðar, Ólafsvíkur og Kópavogs til að spila leikina. Jón Theodór Jónsson er yfirþjálfari og framkvæmdastjóri…Lesa meira

true

Vel tekið í þjóðlega veislu og skemmtan

Síðastliðið laugardagskvöld var boðað til stórveislu fyrir líkama og sál í félagsheimilinu Brautartungu í Lundarreykjadal. Þar tóku höndum saman Kvæðamannafélagið Snorri og Ungmennafélagið Dagrenning. Á matseðlinum voru svið og meðlæti en að því búnu stigu hagyrðingar á svið og skemmtu gestum. Það voru þau Jón Jens Kristjánsson, Helgi Björnsson, Þórdís Sigurbjörnsdóttir og Gunnar J Straumland…Lesa meira

true

Kynna breytingu á aðalskipulagi í Stykkishólmi

Miðvikudaginn í næstu viku, 30. nóvember, mun sameinað sveitarfélag Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar kynna fyrirhugaða breytingu á aðalskipulagi Stykkishólms. Kynningin fer fram á Amtsbókasafninu kl. 17-18. Auk breytingar á aðalskipulagi verða kynntar tillögur að nýjum deiliskipulagsáætlunum fyrir grænan iðngarð við Kallhamra og stækkun athafnasvæðis við Hamraenda. Í auglýsingu sem birtist í Skessuhorni sem kom út í…Lesa meira

true

Samfélagsvegir kynntir fyrir íbúum í Dölum

Opinn fundur var haldinn í Árbliki í Dölum sl. mánudagskvöld þar sem Haraldur Benediktsson alþingismaður kynnti hugmynd sem hann hefur unnið að í nokkurn tíma, um Samfélagsvegi. Skessuhorn greindi frá því í október að Haraldur hefði haldið slíkan fund í Húnaþingi vestra 4. október við góðar viðtökur heimamanna þar. Haraldur imprar reyndar á því að…Lesa meira

true

Aðventudagskrá í Borgarnesi á sunnudaginn

Sunnudaginn 27. nóvember nk. verður jólaandinn allsráðandi í Borgarnesi þegar upphaf aðventu gengur í garð. Dagskrá: Kl. 13:00 – 16:00 Jólasamverustund í Safnahúsi BorgarfjarðarJólakósý í Safnahúsinu – ný örsýning sem fangar jólaanda liðinna jóla með jólakortum og jólakveðjum. Jólaföndur á bókasafninu með kærleiksívafi. Notast verður við endurvinnanleg efni og geta íbúar skreytt útprentaðar jólakúlur með…Lesa meira

true

Handboltaæfingar hafnar í Snæfellsbæ

Nú í haust var byrjað að bjóða börnum og unglingum í Snæfellsbæ að æfa og stunda handbolta og fara æfingar fram í í íþróttahúsinu í Ólafsvík. Tinna Ýr Gunnarsdóttir tók við sem formaður UMF Víkings/Reynis í ágúst á þessu ári. Hún segir í samtali við Skessuhorn að það sé alltaf verið að leita leiða til…Lesa meira

true

Aðventusýning á bókasafni Akraness

Skagakonan Jóhanna Kristín Guðmundsdóttir sýnir ýmsar jólahannyrðir sínar í Bókasafni Akraness. Hún hefur búið í Innri-Akraneshreppi hinum forna og á Akranesi alla sína tíð, er fædd 1935, og starfaði sem hjúkrunarkona á Sjúkrahúsi Akraness og Dvalarheimilinu Höfða. Nú hefur hún sett upp sýningu á ýmsum jólahannyrðum sínum á Bókasafni Akraness, bæði hekl og útsaum af…Lesa meira

true

Varað við snörpum hviðum undir Hafnarfjalli

Veðurfræðingur varar við því að hviðurnar í NA-áttinni í dag verða hvað snarpastar undir Hafnarfjalli, á Kjalarnesi og undir Eyjafjöllum á milli kl. 10 og 14. Einnig er reiknað með snörpum vindhviðum í Öræfum í dag til kl. 15.Lesa meira

true

Klakkur hélt kynningarkvöld

Björgunarsveitin Klakkur í Grundarfirði hélt kynningarkvöld fyrir áhugasama í húsnæði sveitarinnar síðastliðið mánudagskvöld. Þar gafst fólki tækifæri til að skoða tæki og tól sem sveitin hefur til umráða ásamt því að hægt var að skrá sig í björgunarsveitina og taka þátt í æfingum og verkefnum í framtíðinni. Mikil þörf hefur verið á nýliðun í sveitinni…Lesa meira