
Tinna Ýr Gunnarsdóttir. Ljósm. aðsend
Handboltaæfingar hafnar í Snæfellsbæ
Nú í haust var byrjað að bjóða börnum og unglingum í Snæfellsbæ að æfa og stunda handbolta og fara æfingar fram í í íþróttahúsinu í Ólafsvík. Tinna Ýr Gunnarsdóttir tók við sem formaður UMF Víkings/Reynis í ágúst á þessu ári. Hún segir í samtali við Skessuhorn að það sé alltaf verið að leita leiða til að bjóða upp á meiri fjölbreytni í íþróttastarfinu í Snæfellsbæ og þetta sé ein leið til þess. Tinna Ýr æfði sjálf handbolta með ÍR í alls tólf ár og sér um að þjálfa krakkana.