Fimmti flokkur Skallagríms kvenna eftir heimaleik í Keflavík fyrir skemmstu. Ljósm. af FB síðu knattspyrnudeildar Skallagríms.

Spila heimaleikina á útivelli

Knattspyrnudeild Skallagríms sendir tvö lið til keppni í vetur í 5. flokki karla og kvenna í Faxaflóamótinu. Vegna aðstöðuleysis í Borgarnesi þurfa liðin að spila heimaleiki sína á útivelli og ferðast til dæmis á Selfoss, Akranes og Álftanes og til Hafnarfjarðar, Ólafsvíkur og Kópavogs til að spila leikina. Jón Theodór Jónsson er yfirþjálfari og framkvæmdastjóri Skallagríms og segir hann að vegna aðstöðuleysis sé þetta því miður raunin.

Spila heimaleikina á útivelli - Skessuhorn