
Björgunarsveitin Klakkur í Grundarfirði keypti á dögunum DJI Matrice 30T dróna til viðbótar við tækjakost sveitarinnar. Dróninn er afar fullkominn og hentar vel til leitar. Hann er búinn öflugri myndavél með miklum aðdrætti sem og hitamyndavél sem gegnir lykilhlutverki við leitarstörf. Ljóst er að þetta tæki á eftir að nýtast vel fyrir björgunarsveitirnar á Snæfellsnesi…Lesa meira








