Fréttir

true

Bílstjórar stytta sér leið um bílastæði

Það hefur komið mörgum gamalgrónum Skagamönnum og fleirum í opna skjöldu hversu mikilvægt Faxatorg á Akranesi er í samgöngukerfi bæjarins. Eins og kunnugt er standa nú yfir framkvæmdir við torgið og hefur það verið lokað frá því um miðjan nóvember. Margir hafa lent í hálfgerðum vandræðum því fara þarf fáfarnar hliðargötur til að komast leiðar…Lesa meira

true

Reka vinnustofur við Ægisbraut á Akranesi

Fjórar listakonur hafa um hríð rekið saman vinnustofur að Ægisbraut 30 á Akranesi, þar sem áður var til húsa fyrirtækið Glerhöllin.  Viðfangsefni þessara listakvenna er af ýmsum toga, svo sem listmálun, hnýtingar, saumaskapur og vefnaður. Listakonurnar eru Tinna Rós Þorsteinsdóttir, Sigríður Björnsdóttir, Sjöfn Magnúsdóttir og Áslaug Benediktsdóttir. Það var glatt á hjalla hjá listakonunum þegar…Lesa meira

true

Breytingar á aðalnámskrá til að styðja við fjöltyngd börn

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur gert umfangsmiklar breytingar á aðalnámskrá grunnskóla og er unnið að kynningu á þeim fyrir skólasamfélagið. Markmið breytinganna er að tryggja börnum með annað tungumál en íslensku og öðrum fjöltyngdum börnum menntun sem undirbýr þau betur undir virka þátttöku í samfélaginu og nám á öðrum skólastigum. „Þessar breytingar eru mikilvægur liður í…Lesa meira

true

Smíði hafin á fyrstu björgunarskipum Landsbjargar

Hafin er smíði á fyrsta nýja björgunarskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar hjá KewaTec í Finnlandi. Smíðin hófst formlega með svokallaðri kjöllagningu sem fram fór í skipasmíðastöð fyrir helgi. Nú er því formlega hafin smíði á fyrstu þremur björgunarskipunum en markmið Landsbjargar er að endurnýja öll þrettán björgunarskip sín og verður því áfram unnið að frekari fjármögnun verkefnisins.…Lesa meira

true

Aðalheiður Ísold opnaði fyrsta gluggann með Jólakettinum

Fyrsti glugginn í jóladagatali Skagamanna, Skaginn syngur inn jólin, var opnaður í dag. Óli Palli og Hlédís kynntu fyrst til sögunnar húsbandið. Það samanstendur af Birgi Þórissyni, hljómsveitarstjóra og hljómborðsleikara, Birgi Baldurssyni, trommara, Reyni Snæ Magnússyni á gítar og Sigurþóri Þorgilssyni á bassa. Kvikmyndataka var í höndum Arnars Óðins Arnþórssonar og Snorra Kristleifssonar. Tæknistjóri var…Lesa meira

true

Keyrir út vörur til starfsstöðva Heilbrigðisstofnunar Vesturlands

Hörður Jónsson hefur starfað hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands, HVE, í um þrjú ár og líkar vel. Hans starf er að aka með ýmsar vörur frá HVE á Akranesi til hinna ýmsu starfsstöðva HVE á Vestur- og Norðvesturlandi auk þess að taka til baka sýni og annað sem komast þarf á Akranes. Hann fer fjórum sinnum í…Lesa meira

true

Nú er dagurinn til að yfirfara reykskynjarana

Í dag, 1. desember, er dagur reykskynjarans. Þessi litlu og ódýru tæki geta gert kraftaverk, en það þarf að hlúa að þeim. Góð regla er að nota daginn til að yfirfara reykskynjara  á heimilinu. Það þarf að skipta um rafhlöðu, endurnýja bilaða reykskynjara og fjölga þeim ef þarf. Reykskynjara skal hafa í öllum svefnherbergjum, miðrými,…Lesa meira

true

Púlsinn tekinn á stórum bólusetningardegi á Vesturlandi

Síðastliðin vika var stór í bólusetningum vegna Covid-19 hér í landshlutanum og margir sem voru t.d. að fá svokallaðan örvunarskammt. Á miðvikudeginum var bólusett á Akranesi. Blaðamaður Skessuhorns fékk að fylgjast með frá því snemma morguns, allt frá því að bóluefnið var blandað og þar til það var komið í axlir bólusettra. Vinnudagurinn hófst snemma…Lesa meira

true

Póstboxum komið upp á Snæfellsnesi

Pósturinn hefur undanfarin misseri verið að koma upp póstboxum víðs vegar um landið. Nýjustu boxin eru nú komin upp í Grundarfirði og Stykkishólmi. Þar er hægt að nálgast póstsendingar og póstleggja bréf og pakka á öllum tímum sólarhringsins. Þetta er kærkomin viðbót við þjónustuna í ljósi þess að póstafgreiðslan í Grundarfirði er einungis opin frá…Lesa meira

true

Próflaus stal sama bílnum tvisvar

Laust eftir miðnætti, aðfararnótt fimmtudags í síðustu viku barst lögreglu tilkynning um rásandi aksturslag bifreiðar á leið um Hvalfjarðargöng. Lögreglumenn af Akranesi óku til móts við ökumanninn og stöðvuðu hann. Reyndist bíllinn vera ljóslaus, ökumaður án réttinda og grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Sagðist ökumaður hafa verið að kaupa bílinn. Það reyndist ekki rétt…Lesa meira