Mikið gengur á þegar bóluefnið er blandað að morgni dags. Ljósm. frg.

Púlsinn tekinn á stórum bólusetningardegi á Vesturlandi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Síðastliðin vika var stór í bólusetningum vegna Covid-19 hér í landshlutanum og margir sem voru t.d. að fá svokallaðan örvunarskammt. Á miðvikudeginum var bólusett á Akranesi. Blaðamaður Skessuhorns fékk að fylgjast með frá því snemma morguns, allt frá því að bóluefnið var blandað og þar til það var komið í axlir bólusettra. Vinnudagurinn hófst snemma hjá starfsfólki HVE á Akranesi, eða um klukkan 7. Þura Björk Hreinsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá HVE, Jóhannes Bergsveinsson yfirlæknir heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi og Þór Oddsson, lyfjafræðingur hjá HVE, stýrðu blönduninni styrkri hendir. Sex starfsmenn auk þeirra sátu inni í fundaherbergi og blönduðu bóluefnið í gríð og erg og þegar klukkan var farin að ganga tíu voru tæplega þúsund skammtar komnir í kælikassa. Það var greinilegt að hópurinn var ekki að framkvæma þessa blöndun í fyrsta skipti og voru handtökin því örugg og fumlaus og glatt á hjalla í hópnum.\r\n\r\n<em>Sjá myndskreytta frásögn í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>\r\n\r\n&nbsp;",
  "innerBlocks": []
}
Púlsinn tekinn á stórum bólusetningardegi á Vesturlandi - Skessuhorn