{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í dag, 1. desember, er dagur reykskynjarans. Þessi litlu og ódýru tæki geta gert kraftaverk, en það þarf að hlúa að þeim. Góð regla er að nota daginn til að yfirfara reykskynjara á heimilinu. Það þarf að skipta um rafhlöðu, endurnýja bilaða reykskynjara og fjölga þeim ef þarf. Reykskynjara skal hafa í öllum svefnherbergjum, miðrými, þvottahúsi og bílgeymslu. Svo er góð regla að prófa reykskynjara að minnsta kosti fjórum sinnum á ári. Reykskynjarinn er ódýrt öryggistæki, en aðeins ef hugsað er um að hann sé í lagi.",
"innerBlocks": []
}