Fréttir

true

Stór bólusetning í Grundarfirði

Í gær var stór bólusetning í íþróttahúsi Grundarfjarðar. Níutíu skammtar af bóluefni voru blandaðir snemma um morguninn á Akranesi áður en lagt var af stað til Grundarfjarðar. Þegar þessir níutíu skammtar kláruðust voru starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Vesturlands iðnir við að blanda meira en alls voru tæplega tvö hundruð manns bólusettir þennan morgun í Grundarfirði. Eftir hádegi…Lesa meira

true

Umhverfissóðar á ferð við Glanna

Maður sem nýverið átti leið niður að fossinum Glanna í Norðurárdal tók eftir að hrafnaþing mikið var í gangi rétt fyrir innan golfskálann í hrauninu. Hann fór að skoða þetta nánar. Í ljós kom að einhver hafði losað sig á þessum stað við nokkra poka sem innihéldu meðal annars úrbeinaða kindaskrokka og annan lífrænan úrgang…Lesa meira

true

Sigursteinn Hákonarson söng Jólaljósin ljóma

Reynsluboltinn og rokkstjarnan Sigursteinn Hákonarson, Steini í Dúmbo, opnaði annan glugga jóladagatals Skagamanna, Skaginn syngur inn jólin, í morgun. Steini hefur verið lengi að en hann sagði Óla Palla og Hlédísi að hann hefði sennilega sungið fyrst í Bíóhöllinni á Akranesi á bingói hjá karlakórnum Svönum um 1962, um svipað leyti og Rolling Stones voru…Lesa meira

true

Flestar hjónavígslur í kirkju

Af þeim 530 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í ágústmánuði á þessu ári gengu 144 í hjúskap hjá sýslumanni eða 27,2%, 252 giftu sig í Þjóðkirkjunni eða 47,5% og 76 einstaklingar gengu í hjúskap í öðru trú- eða lífsskoðunarfélagi eða 14,3%. 58 einstaklingar gengu í hjúskap erlendis. Í sama mánuði skildu 84 einstaklingar samkvæmt samantekt…Lesa meira

true

Laxinn í öðru sæti í útflutningsverðmætum

Útflutningsverðmæti eldislax frá Íslandi er komið í rúma 23,3 milljarða króna á fyrstu tíu mánuðum ársins. Það er 49% aukning í krónum talið frá sama tímabili í fyrra. Í erlendri mynt er aukningin aðeins meiri, eða rúm 52%, þar sem gengi krónunnar var að jafnaði rúmlega 2% sterkara í ár en á sama tímabili í…Lesa meira

true

Skessuhornsblöð til jóla

Nú í desember verða gefin út þrjú tölublöð af Skessuhorni. Hið fyrsta kom út í gær, en hin síðari miðvikudaginn 8. desember en Jólablað Skessuhorns verður svo gefið út miðvikudaginn 15. desember. Athygli er vakin á því að vegna stærðar Jólablaðsins þarf efni og auglýsingar til birtingar í því að skila sér tímanlega, eða fyrir…Lesa meira

true

Nýtt hús rís í Fossabrekku

Lítið hefur verið byggt í Ólafsvík að undanförnu. Nú er hins vegar að rísa nýtt íbúðarhús við Fossabrekku 3. Það eru þau Hanna Metta Bjarnadóttir og Jón Tryggvason sem eru að byggja sér 224 fermetra hús. Það er byggt úr forsmíðuðum einingum sem smíðaðar voru af þeim Jóni Tryggvasyni og Sigurði Gylfasyni hjá JT trésmíði.…Lesa meira

true

Tvö ný fyrirtæki í Borgarplastshúsinu

Nú í haust hófu tvö fyrirtæki starfsemi sína í húsinu Sólbakka 6 í Borgarnesi, húsi sem oftast er kennt við Borgarplast. Annars vegar er það Þvottahús Vesturlands sem hóf starfsemi sína fyrr á árinu með kaupum á Hótelþvotti ehf. Eins og nafnið gefur til kynna er þar rekið þvottahús sem sérhæfir sig í rekstri efnalaugar…Lesa meira

true

Gul viðvörun fyrir nóttina á stór Snæfellsnessvæðinu

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir vestanvert landið vegna hvassviðris í nótt. Það gengur í suðaustan 15-20 m/s við Faxaflóa með snörpum vindhviðum við fjöll. Einnig má búast við snjókomu með lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum, einkum á fjallvegum. Á spásvæðinu Breiðafirði verður suðaustan 15-25 m/s með snörpum vindhviðum við fjöll, hvassast á Snæfellsnesi.…Lesa meira

true

Gísli Jónsson bauð lægst í bílabjörgun í Hvalfjarðargöngum

Í gær voru opnuð tilboð í bílabjörgun í Hvalfjarðargöngum fyrir árin 2022 til 2024. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á sléttar 70 milljónir króna. Gísli Stefán Jónsson ehf. á Akranesi var lægstbjóðandi með 79.980.000 krónur sem er um 14% yfir kostnaðaráætlun. Vaka hf. í Reykjavík bauð talsvert hærra, 187.673.000 krónur en það er um 168% yfir kostnaðaráætlun.…Lesa meira