Fréttir

true

Árgangamóti ÍA frestað

Árgangamóti ÍA sem átti að fara fram laugardaginn 20. nóvember næstkomandi hefur verið frestað vegna óviðráðanlegra orsaka. Þetta er annað árið í röð sem mótinu er frestað en því var frestað í fyrra vegna kórónuveirufaraldursins. Næsta árgangamót er áætlað laugardaginn 12. nóvember á næsta ári.Lesa meira

true

Víðtæk lokun á Akranesi í dag

Það eru ekki eingöngu skólar, frístunda- og íþróttastarf sem liggur niðri á Akranesi í dag vegna Covid-19 smita í samfélaginu. Einhver þjónustufyrirtæki eru sömuleiðis lokuð, svo sem Fjöliðjan og Búkolla auk þess sem takmörkuð opnun er á bæjarskrifstofunum. Árrisulir sætabrauðsdrengir komu nú rétt í þessu að lokuðum dyrum í Kallabakaríi og þá verður matsala Gamla…Lesa meira

true

Hraðhleðslustöð rís í Stykkishólmi

Framkvæmdir standa nú yfir á bílaplani við Íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi en þar mun rísa rafhleðslustöð fyrir bíla. Frá þessu segir á vef Stykkishólmsbæjar en Stykkishólmsbær hefur samið við Ísorku um að reisa 150 kílóvatta hraðhleðslustöð á umræddu svæði. Bæjarstjóra var falið af bæjarráði að vinna að því að hraða uppbyggingu hraðhleðsluinnviða í Stykkishólmi og stuðla…Lesa meira

true

Björgunarsveitarfólk byrjað að selja Neyðarkallinn

Dagana 4. til 7. nóvember standa björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar fyrir fjáröflunarátakinu „Neyðarkall björgunarsveitanna.“ Átakið á sér orðið langa sögu, hófst 2006 og er þetta því í 16. skipti sem björgunarsveitirnar bjóða almenningi að styðja starf þeirra með því að kaupa Neyðarkall. Í ár er um að ræða sjóbjörgunarmann sem er klár í útkall á sjó,…Lesa meira

true

Nýtt íþróttahús rís brátt á Jaðarsbökkum

Um þessar mundir eru að hefjast framkvæmdir við nýtt íþróttahús á Jaðarsbökkum á Akranesi en það verður stærsta framkvæmd Akraneskaupstaðar um árabil. Um er að ræða fjölnota íþróttahús og er það einn áfangi af mörgum í áframhaldandi uppbyggingu íþróttamannvirkja á svæðinu. Húsið samanstendur af fjölnota íþróttasal og hliðarbyggingu á tveimur hæðum fyrir ýmis fylgirými. Íþróttasalurinn…Lesa meira

true

Fjarnám er byggðamál segir rektor Háskólans á Bifröst

Við Háskólann á Bifröst er í dag eingöngu kennt í fjarnámi með stuttum staðarlotum á sex vikna fresti. Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor við skólann segir það stefnu skólans að mæta menntaþörf landsmanna hverju sinni og að köllun sé eftir auknu fjarnámi. „Fyrst þegar Háskólinn á Bifröst var stofnaður vantaði menntamöguleika á landsbyggðinni og var stofnun…Lesa meira

true

Enn er varað við kræklingsáti

Matvælastofnun varar áfram við tínslu og neyslu á kræklingi úr Hvalfirði þar sem DSP þörungaeitur greindist yfir viðmiðunarmörkum þegar sýni voru tekin 22. október sl. DSP þörungaeitur í kræklingi getur valdið kviðverkjum, niðurgangi, ógleði og uppköstum. Einkenni koma fram fljótlega eftir neyslu en líða hjá á nokkrum dögum.Lesa meira

true

Próflaus og undir áhrifum ávana- og fíkniefna

Lögreglan stöðvaði í gær för ökumanns í Borgarnesi sem hafði ekið undir áhrifum ávana- og/eða fíkniefna. Því til viðbótar kom í ljós að ökumaðurinn hafði verið sviptur ökuréttindum þrisvar sinnum og var próflaus. Ökumaðurinn var handtekinn og fluttur á lögreglustöð og mál hans sett í hefðbundið ferli. Getur ökumaðurinn reiknað með háum fjársektum og jafnvel…Lesa meira

true

Matarveislan er hafin

Nú er Matarveisla Vesturlands hafin og styttist í Matarhátíð á Hvanneyri, sem verður haldin laugardaginn 13. nóvember. Matarveislan stendur yfir allan nóvembermánuð og geta allir tekið þátt sem vilja bjóða upp á matartengda viðburði í mánuðinum. Viðburðirnir geta verið hvað sem er sem tengist mat eða matarhefð, til dæmis tilboð, popup viðburðir, fræðsla eða annað…Lesa meira

true

Hallbjargartónleikum frestað

Í kvöld ætlaði Rótarýklúbbur Akraness að standa fyrir minningartónleikum um Hallbjörgu Bjarnadóttur í sal Tónlistarskólans á Akranesi. Tónleikunum hefur nú verið frestað um óákveðinn tíma vegna bylgju Covid-19 sem nú gengur yfir í bæjarfélaginu.  Lesa meira