
Þróun rafrænna sjúkraflutningaskýrslna er að ljúka, prófunarferli að hefjast og stefnt að því að innleiðing þeirra hefjist í byrjun næsta árs. Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að þessi tækni marki tímamót; auki öryggi sjúklinga með skjótu aðgengi sjúkraflutningafólks að upplýsingum um skjólstæðinga sem gagnast við ákvarðanatöku á vettvangi og skráning nýrra upplýsinga verður samstundis aðgengileg…Lesa meira








