Gul viðvörun á morgun

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Gul viðvörun er fyrir allt landið á morgun, þriðjudag, vegna hvassviðris og úrkomu. Við Faxaflóa og Breiðafjörð tekur viðvörunin gildi kl. 10:00. Við Faxaflóa gildir viðvörunin til kl. 17:00 og er spáð suðaustan og austan 15-20 m/s og talsverðri rigningu, en norðaustan 20-25 m/s á Snæfellsnesi. Eftir hádegi snýst í norðvestan 15-23 m/s og búast má við snörpum vindhviðum við fjöll. Við Breiðafjörð er viðvörunin í gildi til kl. 16:00 og er spáð norðaustan 20-25 m/s með snörpum vindhviðum við fjöll. Einnig má búast við talsverðri rigningu og snjókomu eða slyddu með versnandi færð á fjallvegum. Fólk er hvatt til að koma lausamunum í öruggt skjól og verður veðrið á morgun varasamt til ferðalaga.",
  "innerBlocks": []
}
Gul viðvörun á morgun - Skessuhorn