Fréttir

true

Áfram fækkar í hópi smitaðra

Samkvæmt samantekt Lögreglunnar á Vesturlandi í gær hefur verulega fækkað í hópi smitaðra með Covid-19 í landshlutanum. Einungis tveir íbúar á Akranesi voru þá í einangrun. Á Akranesi voru átta í sóttkví og einn að auki í Borgarnesi. Að öðru leyti var Vesturland veirufrítt í gær.Lesa meira

true

Dósamóttaka á dekkjaverkstæði

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var samþykkt að flytja dósamóttöku Öldunnar tímabundið í húsnæði að Borgarbraut 55 í Borgarnesi, fyrrum hús Bifreiðaþjónustu Harðar. Tekið er fram í fundargerð að sú ráðstöfun verði þó ekki lengur en til áramóta. Þar til vinni sveitarstjóri að undirbúningi framtíðarhúsnæðis dósamóttökunnar og hæfingar Öldunnar.Lesa meira

true

Hátíð í kvöld á Fosshóteli í Stykkishólmi

Opnunarhátíð verður á Fosshóteli í Stykkishólmi í kvöld, föstudaginn 17. september, í tilefni opnunar á nýendurbættum ráðstefnu-, tónleika- og veislusal á hótelinu. Húsið opnar síðdegis. Klukkan 16:30 er gestum frjálst að skoða hótelið, herbergi, bar og nýuppgerða salinn og Ölgerðin býður upp á glaðning fyrir börn og fullorðna. Klukkan 17 hefst formleg dagskrá með ávarpi…Lesa meira

true

Innköllun vegna listeríu í taðreyktum silungi

Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur pökkunardagsetningum af taðreyktum silungi frá Geitey vegna listeríu. Við innra eftirlit fyrirtækisins greindist listería og hefur fyrirtækið innkallað vöruna, í samráði við Matvælastofnun. Innköllunin nær eingöngu til pakkninga með pökkunardagsetningu 06.09.21 og 07.09.21: Vöruheiti: Taðreyktur silungur Framleiðandi: Geitey ehf Nettóþyngd: Breytileg Pökkunardagsetning: 06.09.21 og 07.09.21 Geymsluskilyrði: Kælivara við 0-4°C…Lesa meira

true

Selja slökkvibíl í Dölum

Hjá Dalabyggð er nú til sölu slökkvibíll af gerðinni Magirus Deutz. Bíllinn er frá árinu 1982 og ekinn aðeins 57.400 km. Slökkvilið Dalabyggðar keypti bílinn árið 1997, innfluttan frá Þýskalandi. Í bílnum er 5.000 lítra vatnstankur og 500 lítra froðutankur. Á bílnum er stór vatnsbyssa sem hægt er að stjórna handvirkt af toppi bílsins, fjarstýra…Lesa meira

true

Ætla að ljúka framkvæmdum í vetur

Nýtt laugarhús var reist við Hreppslaug í Skorradal síðastliðið vor en byrjað var að reisa húsið 29. mars síðastliðinn. Þá var einnig búið að steypa nýja potta við laugina. Ungmennafélagið Íslendingur stendur að byggingu hússins og styrktir Skorradalshreppur framkvæmdirnar. Um er að ræða 160 fermetra hús með töluvert betra aðgengi en það gamla. Að sögn…Lesa meira

true

Útimarkaður Brákarhlíðar

Starfsfólk Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Brákarhlíðar í Borgarnesi hélt Handverks- og útimarkað síðasta fimmtudag. Þar var ýmislegt til sölu fyrir gesti og gangandi. Markaðurinn fór fram á bílastæðinu fyrir neðan heilsugæsluna í ágætis veðri milli klukkan 14 og 17 og mættu margir. Stefnt er að því að geta boðið upp á eitthvað viðlíka í Brákarhlíð þegar…Lesa meira

true

Áskell og Vörður komu inn til löndunar

Systurskipin Áskell ÞH 48 og Vörður ÞH 44 komu inn til löndunar í Grundarfirði á miðvikudaginn. Áskell kom með rúmlega 32 tonn af afla þar sem uppistaðan var þorskur, eða 19 tonn. Vörður var með rúmlega 42 tonn af afla og þar af 26 tonn af þorski. Skipin lönduðu einnig bæði í Grundarfirði 12. september…Lesa meira

true

Styrkja hringrásarhagkerfi í Borgarbyggð

Borgarbyggð og Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hafa gert með sér samninga um styrkveitingar til annars vegar bættrar úrgangsþjónustu við frístundahús og hins vegar söfnunar brotajárns í dreifbýli í Borgarbyggð. Styrkurinn til úrgangsþjónustu nemur fjórum milljónum króna og styrkur til söfnunar brotajárns sexhundruð þúsund krónum. Ráðuneytið auglýsti 18. mars eftir umsóknum lögaðila um styrki til verkefna sem…Lesa meira