Nýtt laugarhús hefur verið reist við Hreppslaug í Skorradal auk þess sem búið er að steypa tvo nýja potta. Ljósm. Kristín Jónsdóttir.

Ætla að ljúka framkvæmdum í vetur

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nýtt laugarhús var reist við Hreppslaug í Skorradal síðastliðið vor en byrjað var að reisa húsið 29. mars síðastliðinn. Þá var einnig búið að steypa nýja potta við laugina. Ungmennafélagið Íslendingur stendur að byggingu hússins og styrktir Skorradalshreppur framkvæmdirnar. Um er að ræða 160 fermetra hús með töluvert betra aðgengi en það gamla. Að sögn Kristjáns Guðmundssonar, formanns Umf. Íslendings, var í upphafi stefnt að því að opna húsið síðastliðið sumar en það tókst ekki. „Við misstum iðnaðarmenn í sumarfrí svo þetta dróst aðeins,“ segir Kristján í samtali við Skessuhorn. „Við ákváðum því bara að vinna þetta í rólegheitum í vetur og vera með allt klárt til að opna næsta vor,“ bætir hann við.\r\n\r\nHúsið er að sögn fullbúið að utan en á eftir að ljúka framkvæmdum innandyra og klára útisvæði, leggja hellur og ganga frá. „Við ætlum bara að vanda vel til verks og vera með allt tilbúið þegar við opnum næsta vor,“ segir Kristján.",
  "innerBlocks": []
}
Ætla að ljúka framkvæmdum í vetur - Skessuhorn