Innköllun vegna listeríu í taðreyktum silungi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur pökkunardagsetningum af taðreyktum silungi frá Geitey vegna listeríu. Við innra eftirlit fyrirtækisins greindist listería og hefur fyrirtækið innkallað vöruna, í samráði við Matvælastofnun. Innköllunin nær eingöngu til pakkninga með pökkunardagsetningu 06.09.21 og 07.09.21:\r\n\r\n<em>Vöruheiti:</em> Taðreyktur silungur\r\n\r\n<em>Framleiðandi:</em> Geitey ehf\r\n\r\n<em>Nettóþyngd:</em> Breytileg\r\n\r\n<em>Pökkunardagsetning:</em> 06.09.21 og 07.09.21\r\n\r\n<em>Geymsluskilyrði:</em> Kælivara við 0-4°C\r\n\r\n<em>Dreifing:</em> Verslanir Hagkaupa, Nettó verslanir, Krambúð Húsavík, Skagfirðingabúð, Hlíðarkaup, Lamb-Inn, Melabúðin, Fjarðarkaup og Kolaportið.\r\n\r\nÍ flestum heilbrigðum einstaklingum veldur neysla á listeríumenguðum matvælum ekki sjúkdómi. Áhættuhópar eru barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn og einstaklingar með skert ónæmiskerfi. Hópsýkingar af völdum listeríu eru mjög sjaldgæfar, oftast er um að ræða einstaklingssýkingar.\r\n\r\nNeytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila vörunni til fyrirtækisins eða í viðkomandi verslun.",
  "innerBlocks": []
}
Innköllun vegna listeríu í taðreyktum silungi - Skessuhorn