{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Starfsfólk Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Brákarhlíðar í Borgarnesi hélt Handverks- og útimarkað síðasta fimmtudag. Þar var ýmislegt til sölu fyrir gesti og gangandi. Markaðurinn fór fram á bílastæðinu fyrir neðan heilsugæsluna í ágætis veðri milli klukkan 14 og 17 og mættu margir. Stefnt er að því að geta boðið upp á eitthvað viðlíka í Brákarhlíð þegar nær dregur jólum og þá innandyra. Björn Bjarki Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Brákarhlíðar, var á svæðinu og smellti af meðfylgjandi mynd.",
"innerBlocks": []
}