
Bíllinn er af gerðinni Magirus Deutz. Ljósm. Dalabyggð.
Selja slökkvibíl í Dölum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hjá Dalabyggð er nú til sölu slökkvibíll af gerðinni Magirus Deutz. Bíllinn er frá árinu 1982 og ekinn aðeins 57.400 km. Slökkvilið Dalabyggðar keypti bílinn árið 1997, innfluttan frá Þýskalandi. Í bílnum er 5.000 lítra vatnstankur og 500 lítra froðutankur. Á bílnum er stór vatnsbyssa sem hægt er að stjórna handvirkt af toppi bílsins, fjarstýra úr stýrishúsi eða með fjarstýringu að utan. Þessi bíll hefur alltaf staðið inni í upphituðu húsi og er því í sæmilegu ástandi en þó er þörf á smá viðhaldi.\r\n\r\nNánari upplýsingar um bílinn er að finna á heimasíðu Dalabyggðar, dalir.is.\r\n\r\nÓneitanlega býður bíll af þessari gerð upp á ýmsa möguleika. Benda má á að hægt væri með svona græju að opna froðudiskó, nú eða fyrir ömmu og afa að kaupa slökkvibíl, slá sér upp og sækja barnabörnin á leikskólann og gjörsigra vinsældakeppnina.",
"innerBlocks": []
}