Fréttir

true

Innköllun vegna listeríu í taðreyktum silungi

Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur pökkunardagsetningum af taðreyktum silungi frá Geitey vegna listeríu. Við innra eftirlit fyrirtækisins greindist listería og hefur fyrirtækið innkallað vöruna, í samráði við Matvælastofnun. Innköllunin nær eingöngu til pakkninga með pökkunardagsetningu 06.09.21 og 07.09.21: Vöruheiti: Taðreyktur silungur Framleiðandi: Geitey ehf Nettóþyngd: Breytileg Pökkunardagsetning: 06.09.21 og 07.09.21 Geymsluskilyrði: Kælivara við 0-4°C…Lesa meira

true

Selja slökkvibíl í Dölum

Hjá Dalabyggð er nú til sölu slökkvibíll af gerðinni Magirus Deutz. Bíllinn er frá árinu 1982 og ekinn aðeins 57.400 km. Slökkvilið Dalabyggðar keypti bílinn árið 1997, innfluttan frá Þýskalandi. Í bílnum er 5.000 lítra vatnstankur og 500 lítra froðutankur. Á bílnum er stór vatnsbyssa sem hægt er að stjórna handvirkt af toppi bílsins, fjarstýra…Lesa meira

true

Ætla að ljúka framkvæmdum í vetur

Nýtt laugarhús var reist við Hreppslaug í Skorradal síðastliðið vor en byrjað var að reisa húsið 29. mars síðastliðinn. Þá var einnig búið að steypa nýja potta við laugina. Ungmennafélagið Íslendingur stendur að byggingu hússins og styrktir Skorradalshreppur framkvæmdirnar. Um er að ræða 160 fermetra hús með töluvert betra aðgengi en það gamla. Að sögn…Lesa meira

true

Útimarkaður Brákarhlíðar

Starfsfólk Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Brákarhlíðar í Borgarnesi hélt Handverks- og útimarkað síðasta fimmtudag. Þar var ýmislegt til sölu fyrir gesti og gangandi. Markaðurinn fór fram á bílastæðinu fyrir neðan heilsugæsluna í ágætis veðri milli klukkan 14 og 17 og mættu margir. Stefnt er að því að geta boðið upp á eitthvað viðlíka í Brákarhlíð þegar…Lesa meira

true

Áskell og Vörður komu inn til löndunar

Systurskipin Áskell ÞH 48 og Vörður ÞH 44 komu inn til löndunar í Grundarfirði á miðvikudaginn. Áskell kom með rúmlega 32 tonn af afla þar sem uppistaðan var þorskur, eða 19 tonn. Vörður var með rúmlega 42 tonn af afla og þar af 26 tonn af þorski. Skipin lönduðu einnig bæði í Grundarfirði 12. september…Lesa meira

true

Styrkja hringrásarhagkerfi í Borgarbyggð

Borgarbyggð og Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hafa gert með sér samninga um styrkveitingar til annars vegar bættrar úrgangsþjónustu við frístundahús og hins vegar söfnunar brotajárns í dreifbýli í Borgarbyggð. Styrkurinn til úrgangsþjónustu nemur fjórum milljónum króna og styrkur til söfnunar brotajárns sexhundruð þúsund krónum. Ráðuneytið auglýsti 18. mars eftir umsóknum lögaðila um styrki til verkefna sem…Lesa meira

true

Úthlutað úr Matvælasjóði

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur úthlutað rúmum 566 milljónum króna úr Matvælasjóði og renna styrkirnir til 64 verkefna. Hlutverk sjóðsins er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Þetta er í annað sinn sem úthlutað er úr Matvælasjóði. Veittir voru styrkir úr fjórum sjóðum á vegum…Lesa meira

true

Tengjast náttúrunni á Degi náttúrunnar

Nemendur í öðrum bekk Grunnskóla Grundarfjarðar nýttu morguninn á degi náttúrunnar, í dag 16. september, til að tengjast náttúrunni. Það gerðu þau með því að fara út á táslunum og finna blautt grasið undir iljunum. Einhverjum fannst þetta svolítið kalt og fengu far á baki kennarans en flest höfðu þau gaman að þessu. Haldið hefur…Lesa meira

true

Skagamenn setja mark sitt á Mjólkurbikarinn

Það er ljóst eftir leiki gærkvöldsins í Mjólkurbikar karla í knattspyrnu hvaða lið mætast í undanúrslitunum í byrjun október. Þar mætast lið Skagamanna og Keflvíkinga annars vegar og lið Vestra og Víkings Reykjavíkur hins vegar. Það er skemmtileg staðreynd að þrír þjálfarar þessara undanúrslitaliða eru Skagamenn í húð og hár. Það eru þeir Jóhannes Karl…Lesa meira