Fréttir

true

Stýrið festist í annað borð

Skipstjóri strandveiðibátsins Kvists KÓ, sem rær frá Ólafsvík, varð fyrir því óhappi í gær að stýri bátsins festist í annað borð og því útilokað að stýra honum til hafnar. Óttar Guðlaugsson skipstjóri, sem er 78 ára og með áratuga reynslu sem skipstjóri á mörgum bátum á hinu ýmsu veiðarfærum, átti því ekki annað í stöðunni…Lesa meira

true

Jón Þór ráðinn þjálfari Vestra

Skagamaðurinn Jón Þór Hauksson hefur gert samning út tímabilið 2021 um að þjálfa lið Vestra frá Ísafirði sem leikur í Lengjudeild karla í knattspyrnu. Jón Þór hafði fyrr í vikunni hafnað tilboði frá Vestra um að þjálfa liðið en félagið gerði aðra tilraun til að fá hann til starfa og hefur hann nú skrifað undir…Lesa meira

true

Tónleikaröðin Sveitalíf væntanleg á Vesturlandið

Söngvaratvíeikið og góðvinirnir Friðrik Ómar Hjörleifsson og Jógvan Hansen hafa verið á heljarinnar tónleikaferðalagi hringinn í kringum landið síðustu vikurnar. Tónleikaröðin ber yfirskriftina Sveitalíf og verða tónleikarnir alls 30 talsins þegar ferðalagi þeirra félaga lýkur í ágúst. Þeir hafa flutt um borð í húsbíl á meðan ferðalaginu stendur og segja bæði ferðalagið og búskapinn hafa…Lesa meira

true

Dópaður og þrísviptur

Lögreglumenn á eftirlitsferð, aðfararnótt þriðjudags, stöðvuðu för ökumanns á Borgarbraut í Borgarnesi. Við athugun reyndist ökumaður vera sviptur ökuréttindum og var þetta í þriðja skiptið sem hann er tekinn próflaus. Þá er hann jafnframt grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna.Lesa meira

true

Svissneskir garðyrkjubændur frumbyggjar í Melasveit

Laurent Balmer og kona hans, Lola Balmer, búa ásamt sonum sínum þremur; Gaston, Cedric og Hector að Narfaseli í Melasveit, strákarnir eru á aldrinum eins og hálfs árs til fimm ára. Þau festu kaup á jörðinni fyrir um ári síðan og hafa byggt þar íbúðarhús og gróðurhús auk þess sem bygging geymslu og lítillar verslunar…Lesa meira

true

Ljómalind með lengri opnun og ýmsar nýjungar

Nú í júlímánuði verður opið í versluninni og upplýsingamiðstöðinni Ljómalind í Borgarnesi frá klukkan 10 til 21 alla daga. Eins og flestir þekkja er Ljómalind sveitamarkaður og til húsa við Brúartorg 4 í Borgarnesi. Þar felst sérhæfingin í matvælum og handverki úr héraði. Ljómalind fékk á síðasta ári styrk úr Uppbyggingasjóði Vesturlands í verkefnið Markaðssetning…Lesa meira

true

Margir langt komnir eða búnir með fyrri slátt

Heyskapur hefur gengið vel hjá bændum á Vesturlandi nú í júlí. Einstaka bændur hófu slátt í júní en flestir um síðustu mánaðamót. Nokkrir hafa nú lokið fyrri slætti, einkum þó kúabændur og þeir sem gátu friðað túnin í vor fyrir beit. Grasspretta fór hægt af stað í vor sökum kulda og lítillar vætu, en eftir…Lesa meira

true

Heldur að lifna við á bökkum uppsveitaánna

„Þetta byrjaði rólega hjá okkur en er allt að koma. Síðasta holl fékk 48 laxa og töluvert af nýgengnum laxi er að veiðast,“ sagði Aðalsteinn Pétursson er við spurðum  út í veiðina í Þverá í Borgarfirði. Svo virðist sem laxveiðin sé aðeins að taka við sér eftir afar rólega byrjun víðast hvar. Norðurá er efst…Lesa meira

true

Mikið fjör á símamóti Breiðabliks

Það var mikið um að vera í Kópavogi um helgina en þar fór fram hið árlega Símamót Breiðabliks í knattspyrnu. Þar öttu þúsundir stúlkna kappi á knattspyrnuvellinum. Snæfellsnessamstarfið sendi m.a. þrjú lið til keppni en keppt var í áttunda, sjöunda, sjötta og fimmta flokki. Snæfellsnes átti lið í sjöunda, sjötta og fimmta flokki og stóðu…Lesa meira

true

Aðgerðir ekki hertar

Fyrsti upplýsingafundur Almannavarna vegna Covid-19 frá 27. maí var haldinn í dag. Það voru þeir Víðir Reynisson og Þórólfur Guðnason sem töluðu á fundinum. Tíu greindust með Covid-19 innanlands í gær og af þeim voru fimm utan sóttkvíar. Það sem af er júlímánuði hafa 23 greinst innanlands. Af þeim voru tíu í sóttkví, sautján fullbólusettir, þrír…Lesa meira