Fréttir

true

Keppni eldri borgara í pútti

Eldri borgarar frá Akranesi og Borgarbyggð keppa nú níunda árið í röð í pútti. Hittast liðin þrisvar og gildir árangur sjö bestu hjá hvoru liði hverju sinni. Fyrst hittust liðin á Reykholtsdalsvelli í Nesi 23. júni síðastliðinn. Þar fóru leikar þannig að Borgarbyggð vann með 481 höggi gegn 504. Hlutirnir snérust við á Hamri í…Lesa meira

true

Hvalreki á Víkurrifi

Ungan háhyrning rak á land á Víkurrifi vestan við Grundarfjörð í síðustu viku. Hræið fannst á föstudaginn en það er mjög nálægt bílastæðinu á svæðinu. Víkurrifið er mikið notað af Grundfirðingum en vinsælt er að fara í heilsubótargöngu eftir fjörunni og svo hefur svæðið mikið verið notuð fyrir sjósund á síðustu misserum. Hræið er illa…Lesa meira

true

Skotheld leið til að plata lúsmýið

Ole Jakob Volden parketslípari á Akranesi hugsar oft út fyrir rammann. Meðfylgjandi mynd deildi hann á fésbók síðu sinni fyrr í dag og segir að eftir miklar pælingar og mælingar hafi hann fundið lausn á þessu lúsmývandamáli; „Lúsmý gildran.“ Hún svínvirkar og allir geta gert svona gildru. Það sem gerist er efirfarandi: „Lúsmýið kemur flögrandi…Lesa meira

true

Halda í dag örsýningu í Legsteinahúsi

Frændsystkinin Páll Guðmundsson og Ingibjörg Þórðardóttir á Húsafelli opna í dag klukkan 13:00 „Pop up“ sýningu í nær fullkláruðu legsteinahúsi í Húsafelli. Sýningin verður einungis opin í dag. Ingibjörg er 16 ára gömul en býr, að sögn Páls frænda hennar, yfir miklum hæfileikum í myndlistinni. Þau munu bæði sýna olíumálverk. Páll m.a. samsett panorama verk…Lesa meira

true

Góður sigur Skagamanna gegn Íslandsmeisturum Vals

Skagamenn gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Íslandsmeistara Vals 2:1 á Akranesvelli í Pepsi Max deildinni í gær. Þarna áttust við efsta lið deildarinnar og botnliðið. Eftir heldur dapurt gengi að undanförnu mættu heimamenn ákveðnir til leiks og gáfu allt í leikinn og voru einfaldlega betri aðilinn í fyrri hálfleik. Gáfu Valsmönnum engan frið á…Lesa meira

true

Grasasnar gefa út plötu tileinkaða John Prine

Vestlenska hljómsveitin Grasasnar lauk nýverið upptökum á nýrri plötu, sem heitir Prine, og hefur að geyma lög bandaríska lagasmiðsins og flytjandans John Prine. Meðlimir Grasasna tóku fyrir löngu ástfóstri við John Prine. En vegur hans sem lagasmiðs og flytjanda og áhrifavalds í bandarískri tónlist óx gríðarlega mikið hin síðustu ár. Upptökur á nýju plötunni stóðu…Lesa meira

true

Skuggamyndir frá Býsans á sumartónleikum í Hallgrímskirkju

Sunnudaginn 18. júlí kl. 16 mun hljómsveitin Skuggamyndir frá Býsans stíga á stokk í Hallgrímskirkju, en tónleikarnir eru liður í sumartónleikaröð í kirkjunni. Þetta er í þriðja sinn sem þessi hressa hljómsveit leikur í kirkjunni. Hljómsveitin leikur tónlist frá Suðaustur-Evrópu sem oft nefnist Balkantónlist en sú tónlist er annáluð fyrir dulúð og tilfinningahita. Hljómsveitin hefur…Lesa meira

true

Kalla eftir veiddum hnúðlöxum til rannsókna

Hnúðlaxar eru nú byrjaðir að ganga í laxveiðiárnar. Hafrannsóknastofnun barst hnúðlax sem Viktor Guðmundsson veiddi nýverið í Sogi við Syðri-Brú. Fiskurinn var hrygna 49,8 cm löng og 1596 grömm að þyngd. Hrygnan var komin nærri hrygningu en hrygningartími hnúðlaxa er mun fyrr en annarra laxa. Eins og sjá má á myndum líkjast hnúðlaxahrygnur sjóbleikju við…Lesa meira

true

Stórtap hjá Víkingi Ólafsvík gegn Aftureldingu

Víkingur Ó. gerði sér ferð í Mosfellsbæinn í gærkvöldi og lék gegn liði Aftureldingar í Lengjudeild karla í knattspyrnu. Þetta var þriðji leikur liðsins undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar sem tók nýlega aftur við sem þjálfari en í fyrstu tveimur leikjunum hafði Víkingur tapað naumlega fyrir Gróttu 3-2 og gert 2-2 jafntefli við Grindavík. Þetta byrjaði…Lesa meira

true

Kári tapaði fyrir KV

Kári lék gegn liði KV í 2. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á KR-velli. Káramönnum hefur ekki gengið vel í sumar og það breyttist ekki í gær því KV komst strax yfir á fjórðu mínútu leiksins með marki frá Kristjáni Páli Jónssyni og voru sterkari aðilinn í leiknum. Eftir um…Lesa meira