Fréttir

true

Skallagrímur með sigur á KFB

Skallagrímsmenn heimsóttu lið KFB á Álftanesi í B-riðli 4. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Viktor Ingi Jakobsson kom Sköllunum yfir rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og í byrjun þess seinni bætti Mario Miguel Pascual öðru marki við fyrir Skallagrím og staðan orðin 0-2. Elvar Freyr Guðnason hleypti smá spennu í leikinn þegar hann skoraði…Lesa meira

true

Skóflustunga tekin að viðbyggingu leikskólans í Stykkishólmi

Í morgun var tekin fyrsta skóflustungan að viðbyggingu við Leikskólann í Stykkishólmi. Það var Hrafnhildur Hallvarðsdóttir forseta bæjarstjórar sem steig upp í gröfuna og naut hún aðstoðar barnabarnsins, Sumarliða Lima, sem jafnframt er væntanlegur nemandi í skólanum. Framkvæmdir hefjast í beinu framhaldi og á húsið, að sögn Jakobs Björgvins bæjarstjóra, að verða tilbúið í febrúar…Lesa meira

true

Skagastúlkur töpuðu gegn Gróttu

ÍA tók á móti Gróttu í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu á Akranesvelli í gærkvöldi. Gróttustúlkur skoruðu fyrsta mark leiksins eftir rúmlega hálftíma leik með marki Signýjar Ylfu Sigurðardóttur og staðan í hálfleik 0-1. Eydís Lilja Eysteinsdóttir bætti við öðru marki fyrir gestina á 61. mínútu eftir slæm mistök markmanns ÍA og Skagastúlkur náðu lítið að…Lesa meira

true

Kveðja frá Boga í Stykkishólm

Eins og flestum harmonikku unnendum er ljóst var landsmóti þeirra í Stykkishólmi frestað um ár. Það átti að fara fram í júní 2021 en verður vonandi haldið í júní á næsta ári. Ég hafði ásamt vinkonu minni pantað okkur leiguhúsnæði fyrir landsmótið eins og margir aðrir og stóð við þann ásetning minn að spila í…Lesa meira

true

Litadýrð á Hinseginhátíð Vesturlands í Borgarnesi

Hinseginhátíð Vesturlands var haldin með pompi og prakt í fyrsta skipti í Borgarnesi um liðna helgi. Hátíðin var gríðarlega vel sótt og margir sem skreyttu sig regnbogalitum ýmist í klæðum, höfuðbúnaði eða andlitsmálningu, eða veifuðu fánunum litríku. Fjölmenni tók þátt í skrúðgöngunni á laugardaginn sem endaði með skemmtidagskrá í Dalhallanum. Veðrið lék við gesti hátíðarinnar…Lesa meira

true

Fjölmenni á miðnætursundstund í Lýsulaugum

Miðnætursundstund í Lýsulaugum var haldin í annað sinn föstudaginn 9. júlí síðastliðinn. Lýsulaugar á Snæfellsnesi er eina laugin sinnar tegundar á landinu og í raun einstakar á heimsvísu. Í lauginni er heitt ölkelduvatn sem kemur beint upp úr jörðinni, inniheldur grænþörunga og er ríkt af magnesíum og kalsíum. Það var Svæðisgarður Snæfellsness sem stóð fyrir…Lesa meira

true

Vel heppnað Fjórðungsmót

Fjórðungsmót Vesturlands var haldið í Borgarnesi frá miðvikudegi til sunnudags í liðinni viku. Mótið var hið glæsilegasta í alla staði, vel skipulagt með skemmtilegri dagskrá langt fram á kvöld. Hestakosturinn á mótinu var frábær og sáust mögnuð tilþrif bæði á kynbótabrautinni og keppnisvellinum. Það voru hestamannafélögin á Vesturlandi sem héldu mótið en hestamannafélögum á Norðurlandi…Lesa meira

true

Veiðin róleg og laxinn áhugalaus að taka

Það er alveg óhætt að segja að laxveiðin sé ekkert til að hrópa húrra fyrir það sem af er sumri. Hún er slök í mörgum ám ef marka má samantekt Landssambands veiðifélaga. Mest veiði var skráð í síðustu viku í Urriðafossi í Þjórsá en í sætunum þar á eftir komu Norðurá og Þverá/Kjarará. Haffjarðará hefur…Lesa meira

true

Dalamaður ársins vill uppbyggingu í Búðardal

Á Jörvagleði Dalamanna, sem haldin var í apríl síðastliðnum, var Dalamaður ársins 2021 kynntur. Fjöldi Dalamanna hlaut tilnefningar en langflestar þeirra fékk Bragi Þór Gíslason og var hann útnefndur Dalamaður ársins 2021. Rökin fyrir valinu voru meðal annars að Bragi Þór er sagður vera bjartsýnn, duglegur, hugmyndaríkur og góð fyrirmynd fyrir unga fólkið auk þess…Lesa meira

true

Falla fjögur lið af Vesturlandi í sumar?

Það verður að segjast eins og er að það gengur ekki alveg nógu vel hjá Vesturlandsliðunum í knattspyrnu á Íslandsmótinu þegar mótið er hálfnað í flestum deildum. Í Skessuhorni sem kom út í dag fer Valdimar K Sigurðsson blaðamaður yfir stöðuna; skoðar stöðu liðanna, helstu úrslit og markaskorara og rýnir í framhaldið hjá karlaliðum ÍA,…Lesa meira