Fréttir

true

Ólafsvíkingar burstaðir

Víkingur Ó. fékk skell þegar liðið heimsótti Keflvíkinga í 1. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Keflvíkingar réðu lögum og lofum á móti Ólafsvíkurliðinu, sem fann aldrei taktinn í leiknum. Að lokum fór svo að heimamenn sigruðu stórt, 6-1. Keflvíkingar brutu ísinn á 11. mínútu leiksins og var það mark af dýrari gerðinni. Davíð Snær…Lesa meira

true

Styrkja endurbætur Hallgrímskirkju

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 11. ágúst síðastliðinn 1,2 milljónar króna styrk til sóknarnefndar Saurbæjarsóknar vegna endurbóta á Hallgrímskirkju í Saurbæ. Sveitarstjórn hafði áður samþykkt styrkveitinguna, með því skilyrði að heildarfjármögnun væri tryggð. Það hefur nú verið gert og sveitarstjórn staðfesti því fyrri ákvörðun sína.Lesa meira

true

Ný heimasíða Skorradalshrepps

Sveitarfélagið Skorradalshreppur hefur tekið í notkun nýja heimasíðu. Vefsíðan er gerð af fyrirtækinu Netvöktun ehf. í Borgarnesi. Aron Hallsson kynnti hreppsnefnd nýju heimasíðuna á fundi í sumar, áður en hún var opnuð. Í fundargerð kemur fram að almenn ánægja sé með nýju heimasíðu hreppsins og samþykkt að heimila oddvita að kaupa ljósmyndir til að prýða…Lesa meira

true

Töluverður laxadauði í kjölfar aurflóðs í Hvítá

Vatns- og aurflóðið sem varð í Hvítá í Borgarfirði síðdegis á mánudaginn, og náði hámarki aðfarnótt þriðjudags, hefur haft mikil áhrif á lífríki árinnar. Dauðan lax má nú finna hálfgrafinn í aurnum á bökkum árinnar neðan við Barnafoss og Hraunfossa. Vargfugl er nú búinn að uppgötva hvað gerst hefur og sestur að veisluborði. Flóðið var…Lesa meira

true

Vesturlandsvegur lokaður í tvö kvöld til viðbótar

Eins og áður hefur verið greint frá hefur Vesturlandsvegur verið lokaður milli Geldingaár og Lyngholts í Hvalfjarðarsveit síðustu tvö kvöld, milli klukkan 20:00 og 07:00 að morgni. Verður vegurinn einnig lokaður á sama kafla vegna framkvæmdanna í kvöld og annað kvöld, það er að segja miðvikudaginn 19. ágúst og fimmtudaginn 20. ágúst. Á meðan á…Lesa meira

true

LS gefur út leiðbeiningar vegna gangna og rétta í haust

Landssamtök sauðfjárbænda hafa gefið út leiðbeiningar vegna gangna og rétta vegna COVID-19 hættustigs almannavarna. Leiðbeiningarnar voru unnar í samstarfi almannavarna, sóttvarnalæknis, Landssamtaka sauðfjárbænda, Bændasamtaka Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga. „Um er að ræða almennar leiðbeiningar um framkvæmd á göngum og réttum.  Það er síðan á ábyrgð sveitastjórnar, sem fer með stjórn fjallskilamála, að tryggja að…Lesa meira

true

Strandveiðum lýkur í dag

Strandveiðisjómenn eru almennt óhressir með þá ákvörðum að lokað verður fyrir strandveiðar eftir daginn í dag. Veður hefur hamlað veiðum að undanförnu en afli verið góður þegar hefur gefið til veiða. Langt hefur verið að sækja fiskinn á Breiðafirðinum í ágústmánuði. Margir strandveiðisjómenn á Snæfellsnesi hafa því lítið getað róið í þessum mánuði og alls…Lesa meira

true

Stór spýja hljóp fram Hvítá og rennsli árinnar nær þrefaldaðist

Gríðarstórt flóð sem bar með sér jökulleir hljóp úr vestanverðum Langjökli síðdegis á mánudaginn og í fyrrinótt. Leitaði flóðið sér farvegs um Svartá, sem alla jafnan er uppþornaður árfarvegur, sem rennur sunnan við Hafursfell, og þaðan í Hvítá ofan við ármót Hvítár og Geitár, ofan við Húsafell. Samkvæmt rennslismæli sem er við Kljáfoss við Hurðarbak…Lesa meira

true

Skagamenn úr leik í Mjólkurbikarnum

Lið ÍA karla í knattspyrnu er dottið úr leik í Mjólkurbikarnum eftir tapleik í 16-liða úrslitum gegn Val í gærkvöldi. Leikurinn átti upphaflega að fara fram í síðasta mánuði en var frestað vegna Covid-19. Leikið var á Hlíðarenda í Reykjavík en síðast þegar þessi tvö lið mættust, á sama velli, fengu Valsmenn skell frá Skagamönnum…Lesa meira

true

Vilja fjölga íbúum á Bifröst

Flestir sem stunda nám við Háskólann á Bifröst gera það í fjarnámi og er skólinn í fararbroddi þegar kemur að slíku námsfyrirkomulagi. Nú er hafið átaksverkefni sem felst í að fjölga íbúum á Bifröst, sem eru nú 100 talsins en geta hæglega verið 350 miðað við framboð góðra íbúða. „Hugmyndafræðin er að fólk geti komið…Lesa meira