Fréttir

true

Komst ekki í gegnum niðurskurðinn í nótt

Valdís Þóra Jónsdóttir atvinnukylfingur úr Leyni á Akranesi lauk í nótt keppni á NSW Open mótinu á Coffs Harbour vellinum í Ástralíu. Mótið er hluti af LET Evrópumótaröðinni sem er sterkasta atvinnumótaröð kvenna í Evrópu. Valdís Þóra lék tvo fyrstu hringina á fimm yfir pari og endaði í 67. sæti. Hún var tveimur höggum frá…Lesa meira

true

Nám, nýsköpun og rannsóknir á Háskóladeginum

Bragðlaukaþjálfun, örnámskeið í rússnesku, mögnuð sýning hjá Sprengjugenginu og jarðskjálftaborð sem hermir eftir Suðurlandsskjálftanum 2008, auk kynningar á um 400 námsleiðum í grunn- og framhaldsnámi, er meðal þess sem í boði verður í Háskóla Íslands þegar Háskóladeginum verður fagnað á morgun, laugardaginn 3. mars kl. 12-16. Háskólinn opnar dyr sínar upp á gátt fyrir landsmönnum…Lesa meira

true

Landað úr færeyskum báti í Ólafsvík

Færeyski línubáturinn Jákup B landaði í Ólafsvík í síðustu viku. Að sögn Sæbjarnar Vigfússonar sölustjóra hjá Fiskmarkaði Íslands var aflinn rúm 86 tonn og var þorskur uppistaða aflans. Sæbjörn sagði fréttaritara að meðalverð á þorskinum hafi verið 285 krónur og á ýsunni 244 krónur. Þessi afli fékkst í fimm lögnum í Breiðafirðinum. Sæbjörn sagði ennfremur…Lesa meira

true

Hótel Húsafell meðal úrvalshótela National Geographic

Hótel Húsafell er fyrst hótela hótelið hér á landi til að vera valið eitt af hótelum National Geographic Unique Lodges of the World, sem framúrskarandi gististaður á heimsvísu. Hótelið vilja samtökin hafa innan sinna raða. Í ljósi þess hversu skilyrðin til að uppfylla þennan úrvalshóp eru ströng er útnefningin markaðslega mjög sterk fyrir Hótel Húsafell…Lesa meira

true

„Einfalt tæki sem getur aukið lífsgæði til muna“

Íslandsklukkan er hugarsmíði Björns Ágústs Magnússonar frá Eystri-Leirárgörðum í Hvalfjarðarsveit. Eins og nafnið gefur til kynna er um klukku að ræða, en enga venjulega klukku þó. Hún sýnir ekki aðeins hvað klukkan er, heldur segir hún það einnig. Er henni ætlað að gera blindum og sjónskertum kleift að fylgjast með tímanum með auðveldum hætti. Björn…Lesa meira

true

Rútan verður fjarlægð á morgun

Eins og fram kom í fréttum Skessuhorns í gær og fyrradag hefur dregist úr hömlu að fjarlægja rútuna sem fauk útaf Borgarfjarðarbraut síðastliðinn sunnudag. Rútan liggur enn í vegkantinum og nær inná aðra akreinina með tilheyrandi hættu. Í frétt mbl.is er greint frá því að til standi að fjarlægja rútuna á morgun, föstudag. Þar er…Lesa meira

true

Skallagrímur nálgast sæti í úrslitakeppninni

Skallagrímur vann góðan sigur á botnliði Njarðvíkur, 91-66, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í gærkvöldi. Leikið var í Borgarnesi. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og þau fylgdust að meira og minna allan fyrsta leikhluta. Skallagrímur átti þó lokaorðið og hafði þriggja stiga forskot að honum loknum, 23-20. Næstu mínútur fylgdust…Lesa meira

true

Stærsti bíll landsins sat fastur í krapaelg

Þau eru ýmis ævintýrin sem henda á jöklum landsins þegar þar er rekin ferðaþjónusta allan ársins hring. Fyrr í þessari viku atvikaðist svo að stór jeppi sem ferjaði fólk á Langjökul festist í snjó í Geitlandi skammt neðan við jökulinn. Næstu bíll á eftir var jöklarútan Sleipnir, stærsti bíll landsins, sérsmíðaður jöklatrukkur í eigu Ástvaldar…Lesa meira

true

Snæfell tapaði suður með sjó

Snæfellskonur þurftu að játa sig sigraðar gegn Íslandsmeisturum Keflavíkur í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var suður með sjó. Keflavíkurkonur höfðu yfirhöndina allan leikinn og sigruðu að lokum með 91 stigi gegn 70. Keflavík byrjaði leikinn af krafti og náði snemma ágætis forskoti. Snæfell náði sér ekki almennilega á strik í fyrsta…Lesa meira

true

Loðnuvinnsla hafin á Akranesi

Nú er verið að landa fyrsta loðnufarminum á Akranesi á þessari vertíð. Það var Venus NS sem kom með um þúsund tonn að landi í gærkvöldi og stendur dæling úr skipinu yfir. Gunnar Hermannsson, verkstjóri á Akranesi, sem stýrt hefur hrognaskurði og -frystingu fyrir HB Granda mörg undanfarin ár, segir á vef fyrirtækisins að vegna…Lesa meira