Fréttir

true

Andlát – Erling Garðar Jónasson

Erling Garðar Jónasson lést á Landspítalanum í Fossvogi 30. ágúst síðastliðinn. Hann fæddist í Reykjavík 24. júní 1935. Erling Garðar var sonur hjónanna Jónasar Sveinssonar framkvæmdastjóra Dvergs í Hafnarfirði og Guðrúnar Jónsdóttur húsmóður. Hann ólst upp í Hafnarfirði í sex systkina hópi en kvæntist Jóhönnu Guðnadóttur, f. 1937, árið 1955 og áttu þau fimm börn.…Lesa meira

true

Vinna hafin við vatnslögn í Grundarfirði

Almenna umhverfisþjónustan ehf. hóf nýverið vinnu við lagningu á nýrri vatnslögn í Grundarfirði fyrir Veitur ohf. Þessi aðgerð er nauðsynleg til að auka kraftinn á kalda vatninu áður en ný fiskvinnsla Guðmundar Runólfssonar ehf tekur til starfa um áramótin. Lögnin mun liggja niður Borgarbraut og svo eftir Nesvegi og verður talsvert rask vegna framkvæmdanna fram…Lesa meira

true

Bjóða út lagningu ljósleiðara í Borgarbyggð

Ríkiskaup hafa, fyrir hönd Ljósleiðara Borgarbyggðar, auglýst eftir tilboðum í lagningu ljósleiðararöra, niðursetningu brunna, uppsetningu tengiskápa, blástur og/eða ídrátt ljósleiðarastrengja ásamt tengingum blástursröra og ljósleiðara í Borgarbyggð. Tilboðsfrestur er til 9. október næstkomandi. Tengistaðir, sem eru styrkhæfir úr Fjarskiptasjóði, verða samtals ríflega 500 talsins. Um er að ræða stærsta einstaka verkefni í lagningu ljósleiðara í…Lesa meira

true

Sjúkraþyrlur munu gegna auknu hlutverki

Starfshópur sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fól að skoða möguleika á aukinni aðkomu þyrlna að sjúkraflugi skilaði ráðherra skýrslu með tillögum sínum í gær. Hópurinn skoðaði tvær leiðir í þessu skyni; annars vegar með aukinni aðkomu Landhelgisgæslu Íslands sem m.a. myndi reka sérstaka sjúkraþyrlu og hins vegar með rekstri sjúkraþyrlu sem rekin væri af öðrum en…Lesa meira

true

Hádegisjazz og heimajazz á Akranesi

Listafélagið Kalman stendur fyrir þrennum jazztónleikum á Akranesi dagana 6.-7. september næstkomandi. Fimmtudaginn 6. september verða hádegistónleikar í Vinaminni. Þar spila þeir Agnar Már Magnússon píanóleikari og Lage Lund gítarleikari frá Norgei. Munu þeir m.a. leika efni af nýútkomnum geisladiski sínum sem heitir Hending. Samstarf þeirra er tiltölulega nýtt af nálinni en hefur verið einstaklega…Lesa meira

true

Smalinn tekur tæknina í sína þágu

Fyrstu fjárleitir voru um helgina, en meðal annars var réttað í Kaldárbakkarétt í Kolbeinstaðarhreppi í gær en Nesmelsrétt í Hvítársíðu var sú fyrsta í röðinni hér á Vesturlandi, en þar var réttað á laugardag. Í Nesmelsrétt er réttað fé sem gengið hefur á Síðufjallinu, fjalllendinu milli Kjarrárdals og Hvítár. Kjartan Guðjónsson frá Síðumúlaveggjum var einn…Lesa meira

true

Skorað á unga frumkvöðla að taka þátt í Gullegginu

Icelandic Startups stendur árlega fyrir frumkvöðlakeppninni Gulleginu sem haldin hefur verið ellefnu sinnum áður. Keppnin er stökkpallur fyrir frumkvöðla á öllum sviðum sem vilja koma hugmynd sinni í framkvæmd. Hlýtur sigurvegari í keppninni eina milljón króna að launum. 110 fyrirtæki hafa orðið í topp tíu sætunum frá upphafi og eru 76% þeirra fyrirtækja sem stofnuð…Lesa meira

true

Vesturlandsmót kvenna í golfi haldið í Borgarnesi

Kvenkylfingar úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi sigruðu í sveitakeppni Vesturlandsmóts kvenna í golfi sem fram fór á Hamarsvelli í Borgarnesi síðastliðinn laugardag. Þátttökurétt áttu konur úr klúbbum af Vesturlandi; Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, Golfklúbbnum Mostra í Stykkishólmi, Golfklúbbnum Vestarr í Grundarfirði og Golfklúbbi Borgarness, sem var að þessu sinni gestgjafi á mótinu. Vesturlandsmót kvenna er…Lesa meira

true

Skagakonur völtuðu yfir Sindra

ÍA heimsótti Sindra á Hornarfjörð í 16. umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu í gær. Fyrir leikinn var ÍA í þriðja sæti en Sindri á botninum. Sást það glöggt á gangi leiksins, því Skagakonur höfðu algera yfirburði frá fyrstu mínútu og sigruðu að lokum stórt, 6-0. Leikurinn byrjaði með látum þegar Sigrún Eva Sigurðardóttir skoraði…Lesa meira

true

Skagamenn sigruðu í fjörugum leik

ÍA sigraði botnlið Magna, 3-2, í líflegum baráttuleik norður á Grenivík á laugardag. Leikurinn fór heldur betur fjörlega af stað. Eftir örfáar mínútur átti Stefán Teitur Þórðarson stangarskot og stuttu síðar var hann búinn að koma ÍA yfir. Góðri sókn Skagamanna lauk með skoti sem var varið út í teiginn. Þar var Stefán Teitur fyrstur…Lesa meira