Fréttir

true

Umsóknir um húsnæðisbætur færast á Ísland.is

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur hafið flutning umsóknarferlis húsnæðisbóta yfir á Ísland.is. Nú þegar er hægt að sækja þar um bæturnar og stefnt er að því að allt umsóknarferlið verði komið yfir á nýja vettvanginn í byrjun næsta árs. Markmiðið er að einfalda ferlið og gera það skýrara og aðgengilegra fyrir umsækjendur. Nauðsynleg gögn, meðal…Lesa meira

true

Gleðivika og metnaður í skreytingum

Það var líf og fjör á Hjúkrunarheimilinu Höfða í dag. Allar deildir heimilisins voru skreyttar í tilefni þess að sérstakri gleðiviku er að ljúka. Árshátíð starfsfólks verður í Miðgarði morgun og hefð fyrir því að skreyta heimilið í tilefni þess. Keppni var um best skreyttu deildina og dómarar fengnir úr efsta lagi stjórnsýslunnar; Sturlaugur bæjarstjóri…Lesa meira

true

Mótvindur í ferðaþjónustu ræddur á fjölmennum fundi í Borgarnesi

„Mótvindur – eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustu,“ var yfirskrift fundar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi sem fram fór í Hjálmakletti í Borgarnesi í gær. Fundurinn var haldinn í samstarfi Samtaka ferðaþjónustunnar, Markaðsstofu Vesturlands, Markaðsstofu Vestfjarða og Markaðsstofu Norðurlands og var vel sóttur af fulltrúum ferðaþjónustu, sveitarfélaga og stjórnmálaflokka. Á fundinum var sjónum beint…Lesa meira

true

Svipmyndir af listagöngu á Akranesi

Vökudagar, tíu daga menningarhátíð á Akranesi, var sett síðdegis í gær. Það gerði Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri. Við sama tækifæri voru menningarverðlaun Akraneskaupstaðar afhent sem og árlegar umhverfisviðurkenningar, eins og fram kom í fréttum hér á vefnum í morgun. Eftir að setningu hátíðarinnar lauk tók við dagskrá víðsvegar um bæinn, en alls er boðið upp á…Lesa meira

true

Komu áhöfn skútu til aðstoðar

Undir kvöld í gær boðaði stjórnstöð Landhelgisgæslunnar Björgunarfélag Akraness út vegna rúmlega 20 metra langrar skútu sem var í vanda stödd um 12 sjómílur vestur af Akranesi. Hafdís SK kom fyrst að skútunni og veitti aðstoð á vettvangi. Björgunarskipið Margrét Guðbrandsdóttir frá Akranesi var við æfingar þegar útkallið barst og hélt áhöfn þess þegar í…Lesa meira

true

Gagnaver eru hratt vaxandi útflutningsgrein

Í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins (SI) kemur fram að gagnaver eru ein af hraðvaxtargreinum íslensks útflutnings. Útflutningstekjur gagnavera og tengdrar starfsemi námu 35,2 milljörðum króna á fyrri hluta þessa árs samanborið við 10,2 ma.kr. á sama tíma í fyrra. Ef fram fer sem horfir verða útflutningstekjur greinarinnar í ár um 72 milljarðar króna sem er…Lesa meira