Fréttir

true

Erlend netverslun heldur áfram að aukast

Enn er ekkert lát á aukningu erlendrar netverslunar Íslendinga og stefnir í að verslun á síðustu þremur mánuðum ársins nemi tæpum 13 milljörðum króna. Samkvæmt nýbirtum tölum Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV) keyptu Íslendingar fyrir 2,93 milljarða króna í erlendum netverslunum í ágúst, sem er 9,13% aukning frá sama mánuði í fyrra. Á sumarmánuðunum, júní til ágúst,…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur í Borgarnesi í kvöld – ÍA sækir Skallagrím heim

Það má búast við hörkuleik í Fjósinu í Borgarnesi í kvöld, föstudaginn 9. október, þegar heimamenn taka á móti Skagamönnum í 1. deild karla í körfuknattleik. Flautað verður til leiks klukkan 19.15 og eru bæði lið staðráðin í að næla sér í dýrmæt stig á fyrstu vikum tímabilsins. Skagamenn, undir stjórn Hjalta Þórs Vilhjálmssonar, hófu…Lesa meira

true

Friður á vinnumarkaði út næsta ár

Síðdegis í gær náðist samkomulag um að kjarasamningar verða áfram í gildi út árið 2027 þrátt fyrir að tólf mánaða verðbólga hafi verið hærri en forsendur samninganna gerðu ráð fyrir. Í byrjun vikunnar sömdu Efling, Starfsgreinasambandið og fleiri félög en í gær var komið að VR og öðrum sem áttu eftir ósamið. Áður en til…Lesa meira

true

Sjúkrabíllinn fyrstur á vettvang bílveltu

Líklega hefur einhvers konar met verið slegið á miðvikudaginn þegar ökumaður missti stjórn á bifreið sinni, rétt austan við Breiðablik, Gestastofu Snæfellsness í Eyja- og Miklaholtshreppi, með þeim afleiðingum að bíllinn fór útaf og valt. Sjúkrabíll á vegum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands var á vesturleið með sjúkling og ók fram á vettvang rétt eftir að óhappið hafði…Lesa meira

true

Skagamenn hefja lokasprettinn gegn Íslandsmeisturunum

Aðeins þrjár umferðir eru eftir af Bestu deild karla í knattspyrnu og fram undan er spennandi lokasprettur hjá Skagamönnum, sem eiga enn möguleika á að tryggja sér sæti í Evrópukeppni á næsta ári. Eftir þriggja vikna landsleikjahlé verður keppni í efri hluta deildarinnar fram haldið á sunnudagskvöld þegar ÍA sækir Íslandsmeistara Víkings í Reykjavík heim.…Lesa meira

true

Unnur er nýjasta björgunarskip Landsbjargar

Það var hátíðleg stund á Patreksfirði síðastliðinn sunnudag þegar nýja björgunarskipið Unnur sigldi til hafnar og fjölmenni tók á móti því. Unnur er áttunda skipið í endurnýjun björgunarskipaflota Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Unnur hlaut nafn sitt til heiðurs Slysavarnadeildinni Unni á Patreksfirði. Við komuna gafst gestum tækifæri til að skoða bæði skipin og í kjölfarið var boðið…Lesa meira

true

Kynntu ljúffenga eldun á sauðakjöti

Hlédís Sveinsdóttir stóð fyrir áhugaverðum viðburði í Nýsköpunarsetrinu Breið á Akranesi í hádeginu í dag. Raunar var um matarboð að ræða þar sem starfsfólki á setrinu og fleiri gestum var boðið í mat, rammíslenskt sauðakjöt. Um var að ræða lokahnykk verkefnis sem Hlédís hefur unnið að og fjallar um framleiðslu og möguleika á markaðssetningu á…Lesa meira

true

Framkvæmdir við nýtt leiksvæði í Krosslandi að hefjast

Framkvæmdir við leiksvæðið í Krosslandi í Hvalfjarðarsveit hefjast á næstu dögum. Búið er að undirrita verksamning við Fagurverk ehf. um verkið en markmiðið er að skapa fjölbreytt og aðlaðandi útivistarsvæði við sjávarsíðuna sem nýtist fólki á öllum aldri. Við hönnun svæðisins var lögð áhersla á að nýta náttúrulega kosti þess, svo sem hæðarmismun og gróður,…Lesa meira

true

Vökudagar fram undan með fjölbreyttri menningardagskrá

Vökudagar, menningarhátíð Akurnesinga, verða haldnir dagana 22. október til 1. nóvember. Að venju verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá með tugum viðburða víðs vegar um bæinn þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Á hátíðinni verður meðal annars boðið upp á tónleika, myndlistarsýningar, skapandi smiðjur, vinnustofur og fjölbreytta viðburði fyrir börn og…Lesa meira

true

Jöfnun atkvæðisréttar mætti ná með 85 þingmönnum

„Sú grundvallarregla að meirihlutinn skuli ráða úrlausn sameiginlegra mála er vitaskuld ein helsta meginstoð lýðræðisins. Meirihlutaræði er hins vegar ekki alltaf lýðræðislegt, svo þversagnarkennt sem það kann að hljóma. „Ofríki meirihlutans“ hefur frá uppafi verið talið ein helsta hættan sem steðjaði að vestrænu lýðræði, en í því felst að meirihluti kjósenda geti í krafti fjöldans…Lesa meira