
Alþingishúsið við Austurvöll. Ljósm. mm
Jöfnun atkvæðisréttar mætti ná með 85 þingmönnum
„Sú grundvallarregla að meirihlutinn skuli ráða úrlausn sameiginlegra mála er vitaskuld ein helsta meginstoð lýðræðisins. Meirihlutaræði er hins vegar ekki alltaf lýðræðislegt, svo þversagnarkennt sem það kann að hljóma. „Ofríki meirihlutans“ hefur frá uppafi verið talið ein helsta hættan sem steðjaði að vestrænu lýðræði, en í því felst að meirihluti kjósenda geti í krafti fjöldans svipt minnihlutann grundvallarréttindum eða tekið til sín alla þjóðarkökuna í stað þess að fá einungis sína stóru sneið í réttu hlutfalli við mannfjölda,“ skrifar Þóroddur Bjarnason prófessor í aðsendri grein.