Verksamningur handsalaður. F.v. Bergur Þorgilsson frá Fagurverki, Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri og Hlynur Sigurdórsson umsjónarmaður mannvirkja. Ljósm. Hvalfjarðarsveit

Framkvæmdir við nýtt leiksvæði í Krosslandi að hefjast

Framkvæmdir við leiksvæðið í Krosslandi í Hvalfjarðarsveit hefjast á næstu dögum. Búið er að undirrita verksamning við Fagurverk ehf. um verkið en markmiðið er að skapa fjölbreytt og aðlaðandi útivistarsvæði við sjávarsíðuna sem nýtist fólki á öllum aldri.