
Gísli, Hlédís og Valný. Gísli með tilbúnar steikur en konurnar af forréttum. Texti og myndir: MM
Kynntu ljúffenga eldun á sauðakjöti
Hlédís Sveinsdóttir stóð fyrir áhugaverðum viðburði í Nýsköpunarsetrinu Breið á Akranesi í hádeginu í dag. Raunar var um matarboð að ræða þar sem starfsfólki á setrinu og fleiri gestum var boðið í mat, rammíslenskt sauðakjöt. Um var að ræða lokahnykk verkefnis sem Hlédís hefur unnið að og fjallar um framleiðslu og möguleika á markaðssetningu á íslensku sauðakjöti. Verkefnið nefnir hún Sætir sauðir. Hlédís fékk Gísla Einarsson fjölmiðlamann og matgæðing með sér í lið við matreiðsluna ásamt Valnýju Benediktsdóttur sem er öllum hnútum kunnug í fyrrum eldhúsi HB á Breið.