Fréttir

true

12.424 eru á kjörskrá á Vesturlandi

Þjóðskrá hefur tekið saman tölulegar upplýsingar úr kjörskrá fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer laugardaginn 29. ágúst nk. Heildarfjöldi kjósenda á landinu er 272.690. Karlar eru 135.741, konur eru 136.749 og einstaklingar með hlutlausa kynskráningu eru 200. Flesta kjósendur er að finna á höfuðborgarsvæðinu, eða 176.601, en næstflesta á Suðurlandi, þar sem þeir eru 24.520. Hér…Lesa meira

true

Styrkjum úthlutað til strandhreinsunar

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur úthlutað 18 styrkjum til verkefna sem felast í hreinsun á strandlengju Íslands á grundvelli tillögu Umhverfis- og orkustofnunar. Alls bárust 24 umsóknir um styrki. Heildarstyrkupphæð er 29,8 milljónir króna. Helstu markmið með veitingu styrkjanna er að strandlengja Íslands verði hreinsuð með skipulegum hætti, hreinsuðum ströndum verði haldið við, að efla…Lesa meira

true

HS Orka kaupir Múlavirkjun

Múlavirkjun á Snæfellsnesi skipti í dag um eigendur, þegar skrifað var undir kaupsamning. Kaupandinn er HS Orka og seljandi er Múlavirkjun ehf, fyrirtæki sem frá 2021 hefur að fullu verið í eigu Eggerts Kjartanssonar bónda á Hofsstöðum í Eyja- og Miklaholtshreppi. Múlavirkjun ehf. var stofnað árið 2003 af Bjarna Einarssyni, Ástþóri Jóhannssyni og Eggerti Kjartanssyni…Lesa meira

true

Þriðji flokkur ÍA er ReyCup meistarar 2026

Knattspyrnufélag ÍA sendi þrjú lið í 3. flokki á ReyCup, knattspyrnumót sem haldið er í Laugardalnum í Reykjavík. Spiluðu tvö lið A og B til úrslita, unnu sína leiki og urðu ReyCup meistarar. A liðið vann Val 1-0 í úrslitaleik á Laugardalsvelli og B liðið vann HK 2-1 í úrslitaleik á aðalvelli Þróttar. Þjálfarar liðanna…Lesa meira

true

Hressilegir dembur sem jafnvel gætu fylgt eldingar

Í dag verður hæg norðlæg eða breytileg átt og víða skúrir, en norðaustan 8-13 m/sek norðvestantil seinnipartinn. Hellidembur á stöku stað með líkum á eldingum á vestanverðu landinu. Styttir víða upp í kvöld, en fer að rigna norðaustantil. Það verður svo norðan 8-15 m/s á morgun, hvassast austast. Rigning eða súld með köflum á Norður-…Lesa meira

true

Kári vann mikilvægan útisigur og heldur sér í toppbaráttunni

Kári sótti þrjú dýrmæt stig þegar liðið lagði Hvíta riddarann 3:1 á útivelli í 14. umferð 2. deildar karla á Malbiksstöðinni að Varmá á föstudagskvöld. Grétar Jónatan Pálmason kom Káramönnum yfir á 44. mínútu og staðan var 1–0 í hálfleik. Fyrirliðinn Árni Salvar Heimisson tvöfaldaði forskotið á 63. mínútu, en tveimur mínútum síðar minnkaði Alexander…Lesa meira

true

Tilnefnd í raflínunefnd

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar 23. júlí síðastliðinn var lagt fram erindi félags- og húsnæðismálaráðuneytisins þar sem óskað er eftir tilnefningu eins fulltrúa Borgarbyggðar í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1. Að afloknum sveitarstjórnarkosningum var sveitarstjórnum heimilt að tilnefna nýjan fulltrúa í nefndina og nýtti nýr meirihluti í Borgarbyggð sér það. Ráðuneytið hafði óskað eftir að sameinað sveitarfélag…Lesa meira

true

Skagakonur stóðust áhlaup KR og fögnuðu dýrmætum sigri

ÍA lagði KR 3–2 í fjörugum leik í 12. umferð Lengjudeildar kvenna sem fram fór í Akraneshöllinni á fimmtudagskvöld. Skagakonur komust í þriggja marka forystu en þurftu að hafa fyrir sigrinum þegar gestirnir minnkuðu muninn í tvígang undir lok leiks. Heimakonur byrjuðu af krafti og Madison Brooke Schwartzenberger kom ÍA yfir á 13. mínútu. Fimm…Lesa meira

true

Dýrmætur útisigur Víkings manni færri í síðari hálfleik

Víkingur Ólafsvík sótti þrjú mikilvæg stig norður yfir heiðar þegar liðið lagði Dalvík/Reyni 1–0 á Dalvíkurvelli í 14. umferð 2. deildar karla á laugardaginn Leikurinn var harður og baráttumikill frá upphafi til enda. Víkingar urðu fyrir áfalli snemma í síðari hálfleik þegar Naim Aaras El Hmaidi var rekinn af velli á 48. mínútu eftir að…Lesa meira

true

Tekið á því í aflraunakeppninni Víkingnum – myndasyrpa

Um helgina fór fram Víkingurinn 2026, en keppnin hét áður Vestfjarðavíkingurinn. Leikar hófust á föstudag á Ólafsfirði þar sem keppt var í Myllugöngu. Síðar sama dag var haldið á Siglufjörð og keppt í drumbalyftu. Þá lá leiðin á Blönduós á laugardagsmorgni þar sem keppt var í steinatökum og réttstöðulyftu. Ekki létu þessir kraftakarlar þar við…Lesa meira