Hressilegir dembur sem jafnvel gætu fylgt eldingar

Í dag verður hæg norðlæg eða breytileg átt og víða skúrir, en norðaustan 8-13 m/sek norðvestantil seinnipartinn. Hellidembur á stöku stað með líkum á eldingum á vestanverðu landinu. Styttir víða upp í kvöld, en fer að rigna norðaustantil.