
Hörð keppni í blandaðri grein en þarna er kraftakarlarnir með 370 kg á öxlunum í veðurblíðunni í Stykkishólmi. Texti og myndir: AF
Tekið á því í aflraunakeppninni Víkingnum – myndasyrpa
Um helgina fór fram Víkingurinn 2026, en keppnin hét áður Vestfjarðavíkingurinn. Leikar hófust á föstudag á Ólafsfirði þar sem keppt var í Myllugöngu. Síðar sama dag var haldið á Siglufjörð og keppt í drumbalyftu. Þá lá leiðin á Blönduós á laugardagsmorgni þar sem keppt var í steinatökum og réttstöðulyftu. Ekki létu þessir kraftakarlar þar við sitja og skelltu sér í blíðuna í Ólafsvík og var þar tekist á í tveimur greinum sama dag. Í Ólafsvík var kastað yfir vegg þar sem kasta þurfti fimm pokum með þyngd frá 18 og upp í 25 kíló. Þá var einnig keppt í bóndagöngu.