
HS Orka kaupir Múlavirkjun
Múlavirkjun á Snæfellsnesi skipti í dag um eigendur, þegar skrifað var undir kaupsamning. Kaupandinn er HS Orka og seljandi er Múlavirkjun ehf, fyrirtæki sem frá 2021 hefur að fullu verið í eigu Eggerts Kjartanssonar bónda á Hofsstöðum í Eyja- og Miklaholtshreppi. Múlavirkjun ehf. var stofnað árið 2003 af Bjarna Einarssyni, Ástþóri Jóhannssyni og Eggerti Kjartanssyni til að undirbúa vatnsaflsvirkjun í Straumfjarðará. Í ágúst 2005 var byrjað að framleiða rafmagn og hefur verið gert allar götur síðan. Í stöðvarhúsi Múlavirkjunar eru tvær túrbínur sem geta framleitt allt að 3,2 megavött en í upphafi var samið við Hitaveitu Suðurnesja, nú HS Orku, um kaup á tveimur megavöttum rafmagns að jafnaði. Framleiðslan hefur ætíð verið meiri á veturna en á sumrin en að meðaltali hefur framleiðslan verið um 14,5 gígavattsstundir á ári.