Fréttir

true

Fimmta tap ÍA í röð eftir stórtap í Keflavík

Karlalið ÍA mátti þola 5–2 tap gegn Keflavík í Bestu deild karla í fótbolta þegar liðin mættust í Keflavík í gær. Þetta var fimmti tapleikur Skagamanna í röð og liðið er nú aðeins þremur stigum frá fallsæti deildarinnar. Heimamenn náðu undirtökunum undir lok fyrri hálfleiks þegar Þorlákur Breki Baxter kom Keflavík yfir með glæsilegu langskoti…Lesa meira

true

Annir í umferðareftirliti

Í vikunni sem leið stöðvaði Lögreglan á Vesturlandi 92 ökumenn og kærði fyrir of hraðan akstur. 468 ökumenn voru auk þess myndaðir við að aka of hratt af hraðamyndavélabifreið embættisins. Þrír ökumenn voru handteknir grunaðir um ölvun við akstur og tveir grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Einn var kærður fyrir notkun farsíma við akstur…Lesa meira

true

Ósk Halldórsdóttir er 100 ára í dag

Elsti íbúi á Akranesi er Ósk Halldórsdóttir sem fagnaði í dag hundrað ára afmæli sínu. Í tilefni dagsins hélt hún veislu fyrir afkomendur sína og vini í hátíðarsal Höfða, þar sem hún hefur búið undanfarið ár. Ósk er andlega hress, minnið bráðgott, en sjón og heyrn tekin að daprast. Fjölmennur hópur ættingja og vina mætti…Lesa meira

true

Ómannaðar bakvaktir dýralækna

Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að ekki hefur tekist, þrátt fyrir tilraunir, að manna bakvaktir dýralækna á tveimur svæðum á Suður- og Vesturlandi. Annars vegar er það á vaktsvæði tvö, sem nær yfir Akraneskaupstað, Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit og Skorradalshrepp, og hins vegar á vaktsvæði 13, Rangárþing ytra og Rangárþing eystra. Á svæði 2 í Borgarfirði…Lesa meira

true

Víkingur Ó með góðan sigur á útivelli

Að Varmá í Mosfellsbæ tók Hvíti Riddarinn á móti Víkingi frá Ólafsvík í þrettándu umferð 2. deildar karla í knattspyrnu á föstudaginn. Skemmst er frá að segja að Víkingur fór með sigur af hólmi 2:0 í annars fremur jöfnum leik. Víkingur Ó fékk víti á síðustu mínútu fyrri hálfleiks. Naim Aaras EL Hmaidi steig á…Lesa meira

true

ÍA beið lægri hlut gegn FHL í Lengjudeild kvenna

ÍA konur sóttu FHL heim í elleftu umferð Lengjudeildar kvenna á laugardaginn. Leikið var í Fjarðarbyggðarhöllinni. Þetta var ekki ferð til fjár eins og sagt er, því Skagakonur biðu lægri hlut og töpuðu leiknum 2:0. Fyrri hálfleikur var fremur tíðindalítill og var staðan markalaus í hálfleik, eftir fremur kaflaskiptan leik. Heimakonur sóttu í sig veðrið…Lesa meira

true

Vel heppnað PRS skotmót í Kolgrafafirði

Skotfélagið Skotgrund stóð um helgina fyrir Fossbúinn Challenge PRS Pro Match 2026 á æfingasvæði félagsins í Kolgrafafirði. Mótið er hluti af evrópsku mótaröðinni Precision Rifle Series (PRS) og tóku 23 keppendur þátt, þar af fjórar konur, auk þess sem nokkrir keppendur komu erlendis frá. Í PRS keppni reyna þátttakendur með sér í fjölbreyttum skotþrautum þar…Lesa meira

true

Svínað fyrir forseta bæjarstjórnar

Nokkrar hænur búa í Flatahverfinu á Akranesi. Af og til fara þær á bæjarrölt í aðliggjandi hverfi. Á leið sinni þurfa þær að þvera umferðarþungar götur eins og Garðagrundina. Þær velja göngustíginn til þess en fara ekki endilega yfir á grænu ljósi. Á myndinni sést ein hænan en framan við bíl Ragnars Sæmundssonar forseta bæjarstjórnar…Lesa meira

true

Kári sótti sigur í Garðabæ

Föstudaginn 17. júlí var leikin þrettánda umferð 2. deildar karla á Íslandsmótinu í fótbolta. Á Samsungvellinum í Garðabæ tók KFG á móti Knattspyrnufélaginu Kára frá Akranesi.  Kára menn unnu dýrmætan sigur á sterkum útivelli en leiknum lauk 5:1 fyrir þeim. Leikurinn fór fjörlega af staða en Kári tók forystuna á 19. mínútu leiksins með marki…Lesa meira

true

Bjóða út gerð hringtorgs

Á morgun rennur út frestur til að gera Vegagerðinni tilboð í gerð nýs hringtorgs á Akrafjallsvegi, á mótum Akrafjallsvegar og Akranesvegar, ásamt nýrri tengingu við Skógarhverfi á Akranesi um Lækjarskóga. „Um er ræða gerð hringtorgs, staðsteypt undirgöng undir Akrafjallsveg, stígagerð að undirgöngum, lagningu vatns- og hitaveitulagna og annarra fjarskiptalagna og rafstrengja ásamt færslu núverandi háspennustrengja.…Lesa meira