Keppendur og þrautarstjórar að loknu Fossbúinn Challenge PRS Pro Match 2026. Texti og myndir: Guðrún Svana Pétursdóttir

Vel heppnað PRS skotmót í Kolgrafafirði

Skotfélagið Skotgrund stóð um helgina fyrir Fossbúinn Challenge PRS Pro Match 2026 á æfingasvæði félagsins í Kolgrafafirði. Mótið er hluti af evrópsku mótaröðinni Precision Rifle Series (PRS) og tóku 23 keppendur þátt, þar af fjórar konur, auk þess sem nokkrir keppendur komu erlendis frá. Í PRS keppni reyna þátttakendur með sér í fjölbreyttum skotþrautum þar sem skotið er á mismunandi vegalengdir innan tiltekins tímamarks og reynir jafnt á nákvæmni, færni og hraða.