
Lárus Orri þungur á brún. Ljósm. Hafliði Breiðfjörð – fotbolti.net
Fimmta tap ÍA í röð eftir stórtap í Keflavík
Karlalið ÍA mátti þola 5–2 tap gegn Keflavík í Bestu deild karla í fótbolta þegar liðin mættust í Keflavík í gær. Þetta var fimmti tapleikur Skagamanna í röð og liðið er nú aðeins þremur stigum frá fallsæti deildarinnar. Heimamenn náðu undirtökunum undir lok fyrri hálfleiks þegar Þorlákur Breki Baxter kom Keflavík yfir með glæsilegu langskoti á 33. mínútu. Tveimur mínútum síðar tvöfaldaði Eiður Orri Ragnarsson forskotið og staðan var 2–0 í leikhléi.