Ósk ásamt þremur barna sinna og fulltrúum frá Akraneskaupstað sem færðu henni blóm. Standandi frá vinstri: Helga Dóra, Móeiður, Hilmar, Steinar Adolfsson og Ragnar B Sæmundsson. Ljósm. mm

Ósk Halldórsdóttir er 100 ára í dag

Elsti íbúi á Akranesi er Ósk Halldórsdóttir sem fagnaði í dag hundrað ára afmæli sínu. Í tilefni dagsins hélt hún veislu fyrir afkomendur sína og vini í hátíðarsal Höfða, þar sem hún hefur búið undanfarið ár. Ósk er andlega hress, minnið bráðgott, en sjón og heyrn tekin að daprast. Fjölmennur hópur ættingja og vina mætti til að heilsa upp á afmælisbarnið. Af þessu tilefni sendi Halla Tómasdóttir forseti Íslands heillaóskaskeyti og þá færðu fulltrúar bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar, þeir Steinar Adolfsson bæjarstjóri og Ragnar B Sæmundsson forseti bæjarstjórnar, Ósk blóm og árnaðaróskir frá bæjarfélaginu í tilefni dagsins.

Ósk fæddist 20. júlí 1926 og ólst upp í Reykjavík. Hún var skírð Guðlaug Ósk en hefur alltaf gengið undir nafninu Ósk. Hún var sannarlega glæsileg á afmælisdaginn í dag og ljómaði ásamt afkomendum sínum sem segja að hún hafi alla tíð verið nægjusöm og úrræðagóð með skarpa hugsun. Þótt árin hafi færst yfir fylgist hún af miklum áhuga með sínu fólki, auk þess að fylgjast með fréttum. Afkomendur hennar segja að í gegnum árin hafi Ósk verið fyrirmynd margra með hlýju, visku, dugnaði og þeirri ró sem aðeins lífsreynslan getur gefið. „Hún hefur kennt okkur að meta það sem skiptir máli, leysa verkefnin af yfirvegun og mæta lífinu með jákvæðu hugarfari. Það er sannur heiður að fá að fagna þessum merka áfanga með henni,“ segja börn hennar.

Ósk giftist Sigvalda Agli Jónssyni, 1. október 1949, þegar hann var 31 árs og hún 23 ára. Sigvaldi var fæddur 10. ágúst 1918 í Skagafirði en dó 25. nóvember 2009, 91 árs. Þau höfðu þá verið gift í 60 ár. Börn Óskar og Sigvalda eru: Hilmar, Helga Dóra, Áslaug og Móeiður.

Sigvaldi Lárusson barnabarn Óskar var veislustjóri. Hér heldur hann á heillaóskaskeyti frá forseta Íslands

Steinunn Kolbeinsdóttir heimsótti Ósk í veisluna, en þær eru elstu íbúarnir á Höfða, 100 ára og 97 ára.

Ósk sker af afmælistertunni og Móeiður dóttir hennar fylgist með