
Ómannaðar bakvaktir dýralækna
Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að ekki hefur tekist, þrátt fyrir tilraunir, að manna bakvaktir dýralækna á tveimur svæðum á Suður- og Vesturlandi. Annars vegar er það á vaktsvæði tvö, sem nær yfir Akraneskaupstað, Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit og Skorradalshrepp, og hins vegar á vaktsvæði 13, Rangárþing ytra og Rangárþing eystra. Á svæði 2 í Borgarfirði er ómönnuð vakt 21. júlí og 24. - 26. júlí.
„Matvælastofnun harmar þessa stöðu og vill upplýsa dýraeigendur tímanlega svo þeir geti búið sig undir þessa skertu þjónustu. Dýraeigendum sem þurfa á þjónustu dýralæknis að halda er bent á að hafa samband við þá dýralækna sem hafa þjónustað þá áður eða aðra almennt starfandi dýralækna. Unnið er að því að finna lausnir á mönnun vakta framangreindra daga og verður tilkynning uppfærð ef breytingar verða á stöðunni. Hafi dýralæknar tök á að manna fyrrnefndar vaktir má gjarnan hafa samband við Matvælastofnun, mast@mast.is“.
Um bakvaktarfyrirkomulag
Í tilkynningu segir: „Dýralæknar, sem stunda almennar dýralækningar, eiga rétt á og þeim ber skylda til að taka þátt í vaktafyrirkomulagi sem skipulagt er á viðkomandi vaktsvæði samkvæmt lögum um dýralækna. Til að tryggja velferð dýra og almenna þjónustu við dýraeigendur skal dýralæknir jafnan vera á bakvakt utan venjulegs dagvinnutíma á hverju vaktsvæði, en dýralæknir telst þó hafa uppfyllt vaktskyldu sína hafi hann sinnt vaktaskyldu sinni með 960 klst. á ári, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 406/2020 um bakvaktir dýralækna. Hlutverk Matvælastofnunar snýr að skipulagi vaktanna.“