Fréttir

true

Telja að ekki sé gætt að hagsmunum villtra laxa og veiðiréttareigenda

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var samþykkt bókun um lagareldi. „Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir yfir áhyggjum af því að við smíði frumvarps Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra til laga um lagareldi og meðferð þess á Alþingi virðist sem hagsmunir veiðiréttarhafa og þeirra samfélaga víða um land, sem byggja afkomu sína meðal annars á tekjum af sjálfbærri…Lesa meira

true

Bæjarstjórn og nýr bæjarstjóri tekur til starfa

Nýkjörin bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar kom saman til fundar fimmtudaginn 11. júní. Á fundinum var skipað í ráð og nefndir og var Fannar Þór Þorfinnsson kjörin forseti bæjarstjórnar og Aðalsteinn Jósefsson formaður bæjarráðs. Um aðra nefndarskipan má lesa um á upplýsingasíðu sveitarfélagsins. Jafnframt var samþykkt að Birkir Jón Jónsson verði ráðinn bæjarstjóri og hefur hann hafið störf.Lesa meira

true

Tólf laxar við opnun Kjararár

Hver laxveiðiáin af annarri er opnuð þessa dagana. Kjarará var opnuð í gærmorgun og veiddust 12 laxar fyrir hádegi. Miðfjarðará var sömuleiðis opnuð í gær og þar veiddust nokkir laxar en Dave McCormark veiddi fyrsta lax sumarins í ánni. Hann var 85 sentimetra hrygna sem fékkst í Hlíðarfossi í morgunsárið. ,,Við erum búnir að veiða…Lesa meira

true

Tíu þúsund Teslur

Í síðustu viku afhenti Tesla bíl númer 10.000 Íslandi, samkvæmt opinberum skráningartölum. Tesla er fyrsta bílamerkið á Íslandi til að ná því að skrá 10.000 rafbíla, en um 2,5% íbúa hér á landi ekur nú um á Tesla rafbílum. Yfir 7.200 af þessum 10.000 bílum eru af gerðinni Model Y, og trónir fjórhjóladrifsútgáfan þar hæst.…Lesa meira

true

Norðurálsmótið er framundan

Norðurálsmótið í knattspyrnu hefst í vikunni á Jaðarsbökkum á Akranesi og lýkur á sunnudaginn. Von er á fjölda gesta alla mótsdagana. Það verða drengir og stúlkur í 8. flokki sem ríða á vaðið á Litla Norðurálsmótinu sem spilað verður á morgun, þjóðhátíðardaginn 17. júní. Áætlað er að keppni hefjist kl. 10:00 og verður mikið líf…Lesa meira

true

Bjarki verður kylfusveinn Gulla á US Open

Borgnesingurinn Bjarki Pétursson, fyrrverandi atvinnukylfingur í Borgarnesi, er á leið til New York en hann verður kylfusveinn Gunnlaugs Árna Sveinssonar, áhugakylfings sem tryggði sér þátttökurétt á erfiðasta risamóti atvinnukylfinga, Opna bandaríska meistaramótinu, US Open. Bjarki mun því taka þátt í því að skrifa nýjan kafla í golfsögu Íslands þegar hann verður „á pokanum“ hjá Gulla…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík átti góða viku

Víkingur Ólafsvík sigraði Magna frá Grenivík 3-1 í leik í annarri deildinni í gær. Spilað var á Ólafsvíkurvelli. Mörk Víkings gerðu Gabríel Þór Þórðarson, Ingvar Freyr Þorsteinsson og Asmer Begic. Magni jafnaði 1-1 en Víkingarnir bættu tveimur mörkum við eftir það og sigruðu næsta örugglega. Á miðvikudag í liðinni viku spilaði Víkingur við Þrótt í…Lesa meira

true

Skoðunardagur mótorhjóla og fornbíla

Það er jafnan hátíðisdagur þegar Frumherji í Borgarnesi býður eigendum mótorhjóla og fornbíla að mæta með tæki sín til skoðunar. Slíkur dagur var í einstakri sumarblíðu á föstudaginn. Grillaðar voru pylsur og boðið upp á veitingar í tilefni dagsins og nýttu margir sér það og ekki síður stundina til að spjalla. Sæmundur Jónsson og Brynja…Lesa meira

true

Heimildamynd um þegar Grundarfjörður varð til

Klukkan 16:30 á Þjóðhátíðardaginn 17. júní verður frumsýnd í Grundarfjarðarkirkju ný heimildamynd um tilurð Grundarfjarðarbæjar. Í henni er sagan sögð í myndum og tali en myndin nefnist Þorp verður til og fjallar um upphaf, þróun og sögu samfélagsins í Grundarfirði. Myndin er alfarið framleidd af heimafólki í samstarfi við Bæringsstofu og er um 20 mínútur…Lesa meira

true

Þannig mun ný Þjóðarhöll líta út

Komin er mynd á hvernig ný Þjóðarhöll, fjölnota íþróttamannvirki í Laugardalnum í Reykjavík, mun líta út. Höllin á að mæta kröfum nútímans með fyrirmyndaraðstöðu fyrir landslið, íþróttafélög og almenning til íþróttaiðkunar, áhorfs og samveru. Þjóðarhöll ehf., fyrir hönd ríkis og Reykjavíkurborgar, hefur valið tilboð Íslenskra aðalverktaka hf. að hönnun og byggingu mannvirkjanna. Auglýst var eftir…Lesa meira