Bjarki og Gulli á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina 2022. Birnir Kúld eldri sonur Bjarka á milli þeirra. Ljósm. pk

Bjarki verður kylfusveinn Gulla á US Open

Borgnesingurinn Bjarki Pétursson, fyrrverandi atvinnukylfingur í Borgarnesi, er á leið til New York en hann verður kylfusveinn Gunnlaugs Árna Sveinssonar, áhugakylfings sem tryggði sér þátttökurétt á erfiðasta risamóti atvinnukylfinga, Opna bandaríska meistaramótinu, US Open. Bjarki mun því taka þátt í því að skrifa nýjan kafla í golfsögu Íslands þegar hann verður „á pokanum“ hjá Gulla á Shinnecocok Hills vellinum í Southampton í New York í þessari viku. Golfvefurinn kylfingur.is greindi frá og gaf Skessuhorni leyfi til að birta viðtal við Bjarka. Sagan á bak við samstarf þeirra Bjarka og Gulla teygir sig nokkur ár aftur í tímann, þegar hlutverkin voru öfug. Þá var Gulli kylfusveinn hjá Bjarka.